

Páll Pálsson, fasteignasali hjá Pálsson fasteignasölu, hefur reglulega tekið saman og birt upplýsingar um meðalfermetraverð fasteigna eftir hverfum og póstnúmerum. Tölurnar eru breytilegar eftir hverfum og tímasetningum.

Samkvæmt nýrri samantekt Páls yfir dýrustu og ódýrustu póstnúmerin á höfuðborgarsvæðinu árið 2025 voru fimm dýrustu póstnúmerin eftirfarandi þar sem meðalfermetraverð er á bilinu 853.000 – 940.000 kr.
Topp 5 dýrustu :
102 : 940,000 kr.
101 : 930,000 kr.
107 : 872,000 kr.
170 : 870,000 kr.
105 : 853,000 kr.
Eins og sjá má eru tvö póstnúmer af fimm í miðborginni. Dýrast er þar póstnúmer 102 sem er nýja Valshverfið, Skerjafjörðurinn, og götur í Vatnsmýrinni við Háskóla Íslands. Miðbærinn heillar alltaf og eru fasteignir þar í öðru sæti sé litið til meðalfermetraverðs.

Vesturbærinn er í þriðja sæti þar sem meðalfermetraverð er 872.000 kr. Og Seltjarnarnes í því fjórða. Hverfi 105, sem nær yfir Hlíðarnar og Holtin er síðan í fimmta sæti með meðalfermetraverð upp á 853.000 kr.

Þegar litið er á fimm ódýrustu póstnúmerin hvað meðalfermetraverð varðar þá eru það hverfi i Breiðholti, Grafarholti, Álftanesi og Hafnarfirði.
Topp 5 ódýrustu:
111 : 645,000 kr.
109 : 645,000 kr.
220: 688,000 kr.
225 : 700,000 kr.
113 : 731,000 kr.
221 : 731,000 kr.
Meðalfermetraverð er lægst í póstnúmerum 109 og 111 eða 645.000 kr, er þar um að ræða Seljahverfið, Bakkana og Stekkina í 109 og Berg-, Fell-, og Hólahverfin i 111.
Hafnarfjörður er í þriðja sæti listans með Vífilsstaðasvæðið, Hamarinn og Hvaleyrarholt þar sem meðalfermetraverð er 688.000 kr. Og Álftanesið í Garðabæ þar sem meðalfermetraverð er 700.000 kr. er í fjórða sæti listans
Í fimmta sæti listans eru saman Grafarholtið í Reykjavík og Vallarhverfið í Hafnarfirði þar sem meðalfermetraverð er 731.000 kr.