

One Battle After Another vann flest verðlaun í flokki kvikmynda sem besta mynd í flokki söngva- og gamanmynda, leikstjóri, handrit og leikkona í aukahlutverki.
Besta mynd í flokki dramamynda var Hamnet, besta erlenda myndin The Secret Agent og besta teiknimyndin KPop Demon Hunters.
Sjá einnig: One Battle After Another, Hamnet og Adolescence sigursælastar á Golden Globes
Rapparinn Snoop Dogg kynnti verðlaunin fyrir besta hlaðvarpið en CBS, sem sýndi frá hátíðinni, klippti út hluta af ræðunni hans. Hér að neðan má sjá það sem áhorfendur heima í stofu sáu.
@goldenglobes It’s podcast time! 🎙️ Here’s Snoop Dogg to announce the first-ever #GoldenGlobes ♬ original sound – Golden Globes
Verðlaunahátíðin var í beinni en svona útsendingar eru alltaf aðeins eftir á, svo hægt sé að grípa inn í ef eitthvað gerist. Eins og í tilfelli rapparans, það var klippt út þegar hann sagði: „Ég er sjúklega freðinn akkúrat núna. Þið létuð mig bíða hérna allt of lengi.“
Entertainment Weekly greinir frá.
Það var leikkonan Amy Poehler sem vann fyrir besta hlaðvarpið.
„Besta hlaðvarpið er mjög mikilvægur flokkur fyrir mig, því áður en hlaðvörp komu til sögunnar þá hlustaði fólk á mig í bílnum. Til ykkur hlaðvarpsstjórnenda: Vonið bara að ég stofni ekki eigin þátt,“ sagði rapparinn.
Sjá einnig: Stjörnurnar í sínu fínasta pússi á rauða dregli Golden Globes