

Ljóst er að knattspyrnuáhugafólk á Íslandi er misjafnlega ánægt með nýja treyju íslenska landsliðsins, treyjan var frumsýnd í morgun.
Það er Puma sem framleiðir búninga liðsins en flestir athugasemdir netverja eru neikvæðar.
Puma hefur framleitt búninga landsliðsins síðustu ár en miðað við hvernig fólk bregst við henni í fyrstu vekur hún litla lukku hjá flestum.

Næstu verkefni íslensku A landsliðanna eru leikir í undankeppni HM 2027 í mars hjá A kvenna og vináttuleikir í sama mánuði hjá A karla. A kvenna mætir Spáni 3. mars og Englandi 7. mars, en ekki er ljóst hvaða liðum A karla mætir en leikirnir fara fram dagana 23.-31. mars.
Unnur Sveins
Það er allt flott á þessu fallega fólki
Rúnar V. Arnarson
Flott !!!
Guðmundur Sverrisson
Hver hannar þessa skelfilega ljótu búninga íslensku landsliðanna okkar, mkannski sá sami og hannaði merki KSÍ sem enginn botnar í ?
Sesselja Haukdal Friðþjófsdóttir
Áhugavert væri að vita vinnu-kostnað við hönnun á nýju treyjunum

Hörður Valdimarsson
Er eitthvað að því að nota fánalitina
Jói Skallinn Waage
Ég get svarið það að KSÍ er að kíkja í kolröng horn miðað við viðbrögðin við búningunum, einnig eru þessir Puma búningar í heild búnir að vera frekar líflausir, catalog-búningar upp til hópa, engin hugsun á bakvið þá, ekkert sem gerir þá sér-íslenska 😕 við hönnuðir sjáum þetta margoft, það er farið lötu leiðina, leiðina sem kostar allra minnsta peninginn en um leið virðist lítil markaðshugsun vera í gangi í að búa til fallega og flotta söluvöru, treyju sem ekki bara er flott úti á velli, heldur er eftirsótt til kaups bæði hérlendis og erlendis.
Manni virðist sem sama stefna sé með fótboltalandsliðin og með Reykjavíkurborg, að hafa hlutina eins einsleita og dull og hægt er að hafa þá.
Einnig virðast menn algjörlega hafa gleymt því að liturinn rauður er hluti af landsliðslitaflórunni okkar, sá litur hefur ekki sést í háa herrans tíð, ekki síðan að Errea var með eldgosabúninginn fræga, hvað 2016?
Heiðar Örn
Úff, flatt og líflaust. Eins og náttföt frá 8. áratugnum. Fullkomlega engin söluvara