fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Halldór tekur fulla ábyrgð – „Ég fann ekki lausnirnar“

433
Sunnudaginn 30. nóvember 2025 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni á 433.is.

Halldór var auðvitað þjálfari Breiðabliks á tímabilinu, allt þar til hann var látinn fara í haust. Hann gerði liðið að Íslandsmeisturum í fyrra en hlutirnir gengu ekki upp á nýafstaðinni leiktíð.

„Við áttuðum okkur á því mjög snemma í mótinu að við áttum í vandræðum með að skapa færi, ekki bara skora mörk heldur skapa færi. Það er bara vinna sem við vorum í allt sumar og ég tek það bara á mig, ég fann ekki lausnirnar. Sóknarlínan breytist töluvert. Við vorum með Aron á kantinum og Ísak frammi nánast allt síðasta tímabil, Jason var með okkur fyrri hlutann og svo Davíð.

Nú var þetta Óli Valur, Gústi og svo Tobias. Þetta eru mjög ólíkir leikmenn frá því sem var. Þetta eru samt frábærir leikmenn, ég er ekki að segja að það hafi ekki verið svo. Ég bara fékk þetta ekki til að tikka,“ sagði Halldór meðal annars um það sem fór úrskeiðis.

„Við breyttum töluvert varnarleiknum, fórum mikið maður á mann. Á móti betri liðunum er það eina leiðin, þú dettur niður eða ferð maður á mann. Svo í kringum Evrópu ætlum við aðeins að spara orku og héldum að við gætum gert þetta eitthvað öðruvísi. En þá er okkur pakkað saman, ætli það sé ekki það sem ég sé mest eftir? Að hafa farið all in maður á mann í hvern einasta leik.“

Umræðan í heild er í spilaranum.

video
play-sharp-fill
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sjáðu geggjaða afgreiðslu Viktors Bjarka á Parken

Sjáðu geggjaða afgreiðslu Viktors Bjarka á Parken
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ensk stórlið á eftir táning sem kostar fimm milljarða

Ensk stórlið á eftir táning sem kostar fimm milljarða
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Viðræður um Rashford í fullu fjöri – Vilja ekki kaupa heldur fá hann aftur á láni

Viðræður um Rashford í fullu fjöri – Vilja ekki kaupa heldur fá hann aftur á láni
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Chelsea bætir tveimur áhugaverðum kostum á lista sinn

Chelsea bætir tveimur áhugaverðum kostum á lista sinn
Hide picture