fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Telja líklegt að íslenska þjóðin verði kýld í magann á föstudag

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 8. október 2025 11:30

Mynd: Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veðbankar búast við hörkuleik milli Íslands og Úkraínu í undankeppni HM á föstudag en gestirnir þykja ívið líklegri til að sigra.

Ísland er með þrjú stig eftir fyrstu tvo leikina en Úkraína aðeins eitt. Bæði lið hafa mætt Frökkum og Aserbaísjan.

Strákarnir okkar koma sér því í frábæra stöðu upp á að ná í annað sætið og þar með umspilssæti með sigri á Úkraínu á föstudag.

Veðbankar telja þó sem fyrr segir líklegt að sterkt lið Úkraínu taki sigur. Á Lengjunni er stuðull á sigur Úkraínu 2,40 en 2,65 á Ísland. Stuðull á jafntefli er 3,16.

Leikurinn fer fram á föstudag klukkan 18:45, en Ísland mætir svo Frökkum á mánudagskvöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Samfélagið í áfalli eftir skyndilegt fráfall fjölskylduföður – Vinsæll lögmaður og fyrrum vonarstjarna í fótbolta

Samfélagið í áfalli eftir skyndilegt fráfall fjölskylduföður – Vinsæll lögmaður og fyrrum vonarstjarna í fótbolta
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Chelsea bætir tveimur áhugaverðum kostum á lista sinn

Chelsea bætir tveimur áhugaverðum kostum á lista sinn
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Bruno Fernandes jafnar framlag Ronaldo fyrir United

Bruno Fernandes jafnar framlag Ronaldo fyrir United