fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Pressan

Birta myndir af meintum morðingja Charlie Kirk og biðja almenning um aðstoð

Pressan
Fimmtudaginn 11. september 2025 16:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alríkislögreglan FBI hefur birt myndir af meintum banamanni Charlie Kirk og biður almenning um aðstoð við að hafa uppi á honum.

Fyrr í dag greindu lögregluyfirvöld í Utah frá því að þau telja sig hafa fundið skotvopnið sem var notað til að ráða áhrifavaldinn af dögum í gær. Eins var tekið fram að lögregla væri með myndir af hinum grunaða en ekki þótti tímabært að birta þær opinberlega að svo búnu.

Skotmanninum er lýst sem karlmanni á háskólaaldri. Hann kom sér fyrir á þaki byggingar sem er beint á móti sviðinu þar sem Kirk hélt fyrirlestur. Eftir að hafa skotið einu skoti sem höfði Kirk í hálsinn flúði skotmaðurinn af vettvangi.

Sjá einnig: Skotvopnið fundið og leitað að ungum byssumanni

FBI hefur nú birt myndir úr öryggismyndavélum en þar má sjá ungan mann með derhúfu, sólgleraugu, í síðerma bol með bandaríska fánanum og í gallabuxum.

„Við biðjum um aðstoð almennings við að bera kennsl á þennan sakborning í tengslum við banvæna skotárás á Charlie Kirk í Utah Valley-háskólanum.“

FBI tók ekki beint fram að maðurinn á myndinni væri grunaður um að vera morðingi en lögregla hefur áður sagt að talið sé að skotmaðurinn hafi verið einn að verki.

Lögregla segist hafa fengið rúmlega 130 ábendingar vegna málsins og þær verði allar teknar til skoðunar. Eins hafa íbúar í nágrenninu verið beðnir um að skoða öryggismyndavélar heima og bifreiða til að kanna hvort þar megi sjá skotmanninn á flótta.

Áður höfðu birst myndir sem virðast sýna skotmanninn koma sér fyrir á þakinu fyrir morðið og svo annað sem sýnir hann flýja eftir að skotið reið af.

Charlie Kirk var hægrisinnaður áhrifavaldur sem hélt úti vinsælu hlaðvarpi. Hann varð einn þekktasti stuðningsmaður Donald Trump og þeim var vel til vina. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn; þriggja ára son og 16 mánaða dóttur. Kona hans og börn voru á staðnum þegar hann var skotinn til bana í gær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi
Pressan
Í gær

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
Pressan
Í gær

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir