fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Gæsahúð og góðar minningar

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 18. júlí 2025 16:14

Erna Hrönn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag kynna Hr. Eydís eina af ástsælustu ballöðum ’80s tímabilsins, Alone með Heart.

Lagið var samið af Billy Steinberg og Tom Kelly og kom fyrst út með dúóinu i-Ten árið 1983 en Alone vakti þó ekki mikla athygli fyrr en Heart tók það upp fjórum árum síðar. Alone fór beint á topp Billboard-listans árið 1987 og hefur síðan þá orðið eitt af stærstu lögum tímabilsins með sinni eftirminnilegu uppbyggingu, tilfinningaþrungnu laglínu og klassískri ’80s dramatík.

„Við höfum áður flutt og tekið upp þetta lag, en nú er komið að því að leyfa ykkur að heyra það LIVE beint úr Háskólabíói, þar sem við fengum að flytja það fyrir troðfullum sal. Það er alltaf eitthvað sérstakt við svona augnablik þegar öll orkan, bæði í laginu og í salnum, smitast út í hvert einasta andartak.“

„Það eru ákveðin lög sem halda alltaf velli og Alone er eitt þeirra. Þetta er lag sem byggir sig hægt upp og leyfir röddinni að gera sitt. Það var alveg magnað að fá að flytja það í Háskólabíói,“ segir Erna Hrönn söngkona.

Fylgja má Hr. Eydís á Facebook, Instagram og YouTube.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short