fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025
Fréttir

Heimsþekktur ofurhugi lést eftir að hafa brotlent í svifvængjaflugi

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 17. júlí 2025 19:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Austurríski ofurhuginn Felix Baumgartner er látinn, 56 ára aldri. Hann lést eftir að hafa lent í slysi í svifvængjaflugi á Ítalíu. Samkvæmt austurrískum miðlum var Baumgartner  að fljúga svifvængju við bæinn Porto Sant’Elpidio, skammt frá Ancona. Í fluginu virðist hann hafa orðið fyrir einhverskonar aðsvifi eða veikindum sem gerði það að verkum að hann missti stjórn á svifvængjunni og brotlenti harkalega í sundlaugagarði ónefnds hótels.

Lést ofurhuginn samstundis við brotlendinguna og þá slasaðist starfsmaður hótelsins einnig þegar hann varð undir svifvængjunni.

Baumgartner öðlaðist frægð fyrir fjölmörg áhættuatriði sem hann framkvæmdi í gegnum árin. Hann hefur stokkið fram af mörgum hæstu byggingum heims í fallhlíf og eitt sinn brunaði hann í fallhlíf yfir Ermasundið.

Atriðið sem hann öðlaðist hins vegar heimsfrægð fyrir var þegar hann sveif upp í ytri mörk gufuhvolfsins í helíumblöðru og stökk til jarðar í fallhlíf árið 2012. Metið stendur enn sem hæsta stökk nokkurs manns en stökkið var úr 39 kílómetra hæð.

Þegar hraðinn var mestur á Baumgartner mældist hann 1.342 kílómetrar á klukkutímann og rauf hann því hljóðmúrinn, fyrstur manna.

Sjálft stökkið stóð yfir í fjórar mínútur og 19 sekúndur áður  og er óhætt að segja að heimsbyggðin hafi tekið andköf yfir hugrekki Baumgartner því engu mátti muna að illa færi. Eitthvað fór nefnilega úrskeiðis í stökkinu og Baumgartner hringsnerist á ógnarhraða.

Hann náði hins vegar áttum að nýju og lenti svo heilu og höldnu í Nýju Mexíkó.

Hér má sjá myndband af stökkinu heimsfræga

 

Segja má að Baumgartner hafi lifað fyrir áhættuatriðin og adrenalínið en hann giftist aldrei og lést barnlaus.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagný send í leyfi frá störfum sem skólastjóri – Ráðin fyrir aðeins ári á umdeildan hátt

Dagný send í leyfi frá störfum sem skólastjóri – Ráðin fyrir aðeins ári á umdeildan hátt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Faðir gagnrýnir borgina fyrir að kenna sólinni og fjárskorti um eftir að þrjú börn urðu fyrir bíl á sama stað – „Það er eitthvað mikið að“

Faðir gagnrýnir borgina fyrir að kenna sólinni og fjárskorti um eftir að þrjú börn urðu fyrir bíl á sama stað – „Það er eitthvað mikið að“