Svarthöfði er áhugamaður um tengsl í samfélaginu. Sér í lagi finnst honum gaman að velta fyrir sér tengslum milli peninga annars vegar og fjölmiðla og stjórnmála hins vegar.
Morgunblaðið Útgáfufélag Morgunblaðsins, Árvakur, er að stærstum hluta í eigu tveggja stórra útgerðarfyrirtækja, Ísfélagsins annars vegar og Kaupfélags Skagfirðinga hins vegar. Þessir tveir aðilar fjármagna taprekstur útgáfufélagsins ár eftir ár. Í fimm manna stjórn Árvakurs sitja meðal annars Guðbjörg Matthíasdóttir frá Ísfélaginu, Sigurjón Rúnar Rafnsson frá Kaupfélagi Skagfirðinga, Katrín Pétursdóttir aðaleigandi Lýsis, og Sigurbjörn Magnússon, faðir Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem er stjórnarformaður.
Frá því að nýir eigendur, að uppistöðu úr sjávarútvegi, tóku við rekstri Árvakurs í febrúar 2009 undir hatti Þórsmerkur (sem á Árvakur) og til loka árs 2020 tapaði útgáfufélagið yfir þremur milljörðum króna. Eigendahópurinn, sem hefur tekið einhverjum breytingum á tímabilinu, hefur lagt Árvakri til að minnsta kosti tvo milljarða króna í nýtt hlutafé. Einnig hafa ríkisbankar afskrifað skuldir upp á meira en 10 milljarða að núvirði.
Eins og þjóðinni allri er Svarthöfða vel kunnugt um að margir lykilstarfsmenn Morgunblaðsins eru skráðir í Sjálfstæðisflokkinn, virkir í starfi hans, gegna eða hafa gegnt trúnaðarstörfum fyrir hann eða hafa bein tengsl við kjörna fulltrúa flokksins. Í þessum hópi eru m.a. Andrés Magnússon, Stefán Einar Stefánsson, Andrea Sigurðardóttir, Hermann Nökkvi Gunnarsson, Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen. Er nú svo komið að traust til Morgunblaðsins sem áreiðanlegs fjölmiðils mælist á pari við það traust sem mælist til Nútímans, Fréttin.is og samfélagsmiðla.
Svarthöfða fannst áhugavert að lesa að Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, á fjárhagslega hagsmuni undir í sjávarútvegi. Annars vegar er hann fyrrverandi tengdasonur eigenda Eskju á Eskifirði, eins stærsta útgerðarfélags landsins sem er á meðal þeirra tíu sem greiða mest í veiðigjald. Þrjú börn Jens Garðars og Ernu Þorsteinsdóttur, stjórnarformanns Eskju, eru því erfingjar að því veldi. Viðskiptablaðið mat auð þeirra á 50 milljarða króna árið 2023.
Hins vegar var Jens Garðar aðstoðarforstjóri laxeldisfyrirtækis sem heitir í dag Kaldvík þangað til að hann settist á þing. Hann keypti hlut í því fyrirtæki árið 2023, viku áður en Ísfélagið fjárfesti í því fyrir á níunda milljarð króna á mun hærra virði en Jens Garðar keypti á. Samkvæmt fréttum frá árinu 2023 átti Jens Garðar hluti í því sem nú heitir Kaldvík fyrir nokkra tugi milljóna króna á því ári í gegnum félag sitt Irminger Holding ehf. Samkvæmt hagsmunaskráningu þingmanna á Jens Garðar enn Irminger Holding ehf. og heldur enn á hlut sínum í Kaldvík. Ísfélagið fjárfesti í Kaldvík fyrir fjóra milljarða króna í lok síðustu viku og er heildarfjárfesting þess fyrirtækis í þessum óskylda rekstri því komin í vel á annan tug milljarða króna.
Svarthöfði kíkti á vef Alþingis er hann hripaði niður þessi orð og komst að því að Jens Garðar Helgason er á mælendaskrá í 2. umræðu um veiðigjaldafrumvarpið. Hann er að fara að flytja sína 14. ræðu í þessari umferð.
Svarthöfði er ekki mikill aðdáandi brauðmolakenningarinnar í hagfræði en margir últra frjálshyggjumenn hafa á henni óbilandi trú. Í henni felst að best sé að skattleggja þá allra ríkustu lítið og helst alls ekki neitt vegna þess að af yfirhlöðnum veisluborðum þeirra hrökkvi brauðmolar sem litla fólkið geti gert sér að góðu, meira þurfi ekki til að skapa fyrirmyndarsamfélagið.
Svarthöfði er samt ekki frá því að brauðmolahagkerfið sé á einhvern hátt virkt að hluta til hér á landi. Af gnægtaborðum sægreifana hrökkvi brauðmolar til nytsamlegra sakleysingja á Morgunblaðinu og í stjórnarandstöðunni sem ekki telja eftir sér að bulla sig hása um það hvernig allt fari lóðbeint til andskotans verði auðugustu fjölskyldum landsins gert að borga eðlilegt endurgjald fyrir afnot af eign sem við eigum öll.
Svarthöfði sér í hendi sér að varaformaður Sjálfstæðisflokksins verður á góðu tímakaupi í ýmsum skilningi í sumar við að sinna þeirri „heilögu skyldu“ sinni að þvaðra út í eitt til að tefja framgang veiðigjaldafrumvarpsins, sem getur jú haft áhrif á það hvort börnin hans verða bara milljarðamæringar eða hvort þau verða skrilljarðamæringar.