fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Pressan

Vísindamenn segja þetta „besta sætið“ út frá möguleikanum á að lifa flugslys af – Það er ekki 11A

Pressan
Föstudaginn 20. júní 2025 03:15

Hvaða sæti ætli hún eigi að sitja í?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimsbyggðin fylgdist skelfingu lostin með fréttum af flugslysi á Indlandi í síðustu viku þar sem tæplega 300 manns fórust. Einn farþegi lifði slysið af. Hann sat í sæti 11A. En vísindamenn segja að það sæti veiti ekki mestu möguleikana á að lifa flugslys af.

Margir telja því eflaust að sæti 11A sé það sæti sem veiti mestu líkurnar á að lifa flugslys af. En svo er ekki að sögn vísindamanna sem hafa kafað ofan í tölfræði tengda flugslysum.

Daily Star segir að vísindamenn segi að margir þættir komi við sögu þegar kemur að líkunum á að lifa flugslys af. Þar á meðal hvaða flugvélategund er um að ræða og hvernig slys. Rannsóknir hafa leitt í ljós að öruggasta sætið í flugvélinni getur aukið líkurnar á að lifa slys af en það sé samt sem áður sjaldgæft að fólk geti gengið lítt slasað frá borði eftir slys.

Rannsóknir hafa einnig leitt í ljós að það séu 40% meiri líkur á að lifa flugslys af ef setið er eins nálægt stéli vélarinnar og hægt er.

Greining á gögnum um flugslys í Bandaríkjunum frá 1971 til 2007 leiddi í ljós að lífslíkurnar fyrir þá sem sátu í 15% fremstu sætunum voru 49%. Fyrir þá sem sátu í miðjunni, við vængina, voru lífslíkurnar 56%. Fyrir þá sem sátu aftan við vængina voru lífslíkurnar 69%.

Í greiningu, sem Time birti 2015, kom fram að dánartíðnin væri lægst hjá þeim farþegum sem sátu í miðjusætum aftast í vélinni. Var dánartíðnin 28% hjá þeim sem sátu í þessum sætum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Elon Musk fór í fíkniefnapróf og birti niðurstöðurnar opinberlega

Elon Musk fór í fíkniefnapróf og birti niðurstöðurnar opinberlega
Pressan
Í gær

Bandaríkjamenn búa yfir vopni sem gæti breytt öllu

Bandaríkjamenn búa yfir vopni sem gæti breytt öllu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er mesti stuðdreparinn í svefnherberginu að mati beggja kynja

Þetta er mesti stuðdreparinn í svefnherberginu að mati beggja kynja
Pressan
Fyrir 2 dögum

Skelfilegt leyndarmál þorpsins – Íbúarnir þora ekki að segja nafn þess

Skelfilegt leyndarmál þorpsins – Íbúarnir þora ekki að segja nafn þess
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hann hvarf 6 vikum eftir brúðkaupið – 70 árum síðar var sannleikurinn afhjúpaður

Hann hvarf 6 vikum eftir brúðkaupið – 70 árum síðar var sannleikurinn afhjúpaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Súkkulaðineysla getur aukið kynhvöt karla og bætt frammistöðuna í kynlífinu

Súkkulaðineysla getur aukið kynhvöt karla og bætt frammistöðuna í kynlífinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hefja vinnu við uppgröft og vonast til að bera kennsl á lík allt að 800 barna

Hefja vinnu við uppgröft og vonast til að bera kennsl á lík allt að 800 barna