fbpx
Laugardagur 14.júní 2025
Pressan

Afi hennar og amma tóku hana að sér og ólu upp – Svona launaði hún þeim góðmennskuna

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 12. júní 2025 19:30

Heidi Dutton og afi hennar og amma, Larry og Deborah

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heidi Dutton var dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á afa sínum og ömmu, sem hún játaði að hafa myrt þegar hún var 17 ára gömul. Nýlega mætti hún fyrir kviðdóm til að heyra dóm sinn kveðinn upp.

Dutton, sem í dag er 19 ára, játaði sök í maí í tveimur ákæruliðum vegna morðs af fyrstu gráðu, samsæri og tvær ákærur um vanhelgun á líki vegna dauða Deborah og Larry Dutton, sem voru líffræðileg afi hennar og amma, sem og kjörforeldrar Dutton.

Þann 6. júní dæmdi dómari í Washington-sýslu Dutton í lífstíðarfangelsi að tillögu kviðdómsins í málinu.

Áður hafði kærasti Dutton, Lucas Walker, verið dæmdur í 35 ára fangelsi vegna þáttar hans í morðunum.Mál Walker var tekið fyrir á alríkisstigi þar sem hann er af Cherokee-þjóðinni.

Lucas Walker

Lögreglumenn hjá lögregluembætti Washington-sýslu hófu ekki rannsókn á dauða hjónanna fyrr en mánuði eftir morðin, eins og kom fram í ákærunni.

Þann 20. janúar 2023 svöruðu lögreglumenn velferðarskoðunarbeiðni (e. Welfare check) á heimili hjónanna í Dewey, borg sem er staðsett um 210 kílómetra suðaustur af Wichita.

Dutton og Walker voru í húsinu þegar lögreglumenn komu á vettvang og voru þau handtekin eftir að rannsóknarlögreglumenn fundu blóð sem hafði lekið undir gólflista svefnherbergis hjónanna.

Walker og Dutton játuðu bæði morðin við yfirheyrslur.

Deborah lést á undan manni sínum

Walker sagði lögreglunni að hann hefði falið sig í svefnherbergi Dutton að kvöldi 19. desember 2022 eftir að hafa tekið 22 kalibera skammbyssu úr bílskúrnum og síðan beðið fyrir utan svefnherbergisdyr hjónanna þar til þau voru sofnuð.

Samkvæmt ákærunni lést Deborah fyrst eftir að hún„opnaði dyrnar að aðalsvefnherberginu skaut Walker hana í andlitið og skar hana á háls.“

Þegar eiginmaður hennar „fór fram úr rúminu og hljóp á Walker reyndi Walker að skjóta Larry Dutton en skammbyssan festist.“ 

Walker sagði að hann hefði þá ákveðið að stinga Larry ítrekað í andlitið með hníf.

Walker og Dutton drógu síðan hjónin út á rúmfötum og grófu þau í bakgarðinum, og náðist atvikið á eftirlitsmyndavél heimilisins, eins og kom síðar í ljós eftir húsleit á heimilinu. 

Líkin grafin í bakgarðinum

Tveimur dögum eftir velferðarskoðunina voru lík hjónanna grafin upp úr bakgarðinum.

Larry Dutton var 73 ára og fyrrverandi yfirliðsforingi í bandaríska flughernum og fyrrverandi framkvæmdastjóri Lt. William M. Milliken flugvallarins í Eureka, Kansas, samkvæmt minningargrein um hjónin. Hann „hafði stórt hjarta og myndi gefa hverjum sem er skyrtuna af bakinu,“ minntist einn vinur hans. Deborah, var fyrrverandi yfirlögregluþjónn í flughernum og hafði einnig starfað sem kokkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Henni var rænt og haldið fanginni í trékassa í 7 ár – Hvað varð um „Stúlkuna í kassanum“?

Henni var rænt og haldið fanginni í trékassa í 7 ár – Hvað varð um „Stúlkuna í kassanum“?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi starfsmaður DOGE opnar sig um reynslu sína og hvers vegna hann var rekinn

Fyrrverandi starfsmaður DOGE opnar sig um reynslu sína og hvers vegna hann var rekinn