Miðjumaðurinn Jorginho er farinn frá Arsenal en hann hefur krotað undir samning við Flamengo í Brasilíu.
Þetta var staðfest í kvöld en Jorginho hefur undanfarin tvö ár spilað með Arsenal eftir komu frá Chelsea.
Hann var ekki í lykilhlutverki á síðasta tímabili og fékk grænt ljós frá Arsenal að færa sig um set í sumar.
Ítalinn er 33 ára gamall og mun spila með Flamengo á HM félagsliða sem hefst eftir rúmlega viku.