Arnar Gunnlaugsson mætti í viðtal hjá Stöð 2 Sport í kvöld eftir landsleik Skotlands og Íslands á Hampden Park.
Ísland vann mjög flottan 3-1 útisigur í vináttulandsleik og var þetta fyrsti sigur landsliðsins undir stjórn Arnars.
,,Mér líður bara mjög vel og mér skilst að þetta hafi verið fyrsti sigur okkar á Skotum í sjö tilraunum. Við vorum fagmannleguir í kvöld og unnum fyrir forskotinu,“ sagði Arnar við Stöð 2 Sport.
,,Við spilum sterka vörn seinni hluta seinni hálfleiks og sigldum þessu heim en auðvitað eru hlutir þarna sem við þurfum að laga. Vonandi hafði þjóðin gaman að þessu og leikmenn voru mjög kátir í leikslok.“
Arnar var svo spurður út í það af hverju Elías Rafn Ólafsson væri í markinu í kvöld frekar en Hákon Rafn Valdimarsson.
,,Við töluðum við hann í síðasta glugga, við þurfum að skoða hann og það er gott að vera með heilbrigða samkeppni þeirra á milli.“
,,Hann er aðeins dottinn úr sínu liði en svaraði kallinu og það er geggjað fyrir okkur að eiga tvo geggjaða markmenn en þetta var einföld ákvörðun.“