Forráðamenn Köln sitja og bíða spenntir, vonast þeir eftir því að Bayer Leverkusen gefi ekkert eftir í viðræðum við Liverpool um Florian Wirtz.
Wirtz ólst upp hjá Köln og því á félagið rétt á vænni summi verði Wirtz seldur.
Liverpool hefur boðið tvisvar í Wirts en þeim tilboðum hefur verið hafnað, vill Leverkusen fá 150 milljónir evra fyrir hann.
Köln gæti með því fengið tæpar 8 milljónir evra í uppeldisbætur. „Við vitum hvaða prósentu við fáum og viljum fá eins mikið og hægt er,“ segir Werner Wolf stjórnarformaður hjá Köln.
„Við fylgjumst vel með þessu, við fáum meira ef Liverpool borgar meira.“
Búist er við að Liverpool reyni að ganga frá kaupum á Wirtz um leið og landsleikir eru á enda.