Giulia Gwinn leikmaður FC Bayern og þýska landsliðsins hefur fengið nóg af því að fá óumbeðnar typpamyndir í skilaboðum.
Gwinn er ein af stjörnum þýska boltans en hún hefur meira en 600 þúsund fylgjendur á Instagram.
„Ég fæ endalaust ef myndum af nöktum karlmönnum,“ segir Gwinn sem varð þýskur meistari með Glódísi Perlu Viggósdóttur á dögunum.
„Þetta eru bara typpamyndir, ég fæ þetta endalaust í innhólfið mitt á Instagram. Þessar myndir koma alltaf frá nafnlausum aðgöngum.“
„Ég eyði þessu um leið og tilkynni þessa aðganga. Þetta er bara ofbeldi.“
Gwinn segir eining frá því að Playbo sé alltaf að biðja hana um að sitja fyrir en hún hefur ekki viljað taka þátt í því.
„Tilboðið var svakalega gott fjárhagslega en ég vil skilgreina mig sem knattspyrnukonu,“ segir Gwinn.
„Þetta eru fallegar myndir en þetta er ekki fyrir mig. Ég get alveg birt mynd af mér í bikiní á Instagram en annað er yfir mörk mín.“