fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Fréttir

Þessi eru ákærð í Gufunesmálinu – Svona var atburðarásin sem leiddi til hörmulegs andláts Hjörleifs

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 4. júní 2025 13:44

Frá Gufuneshverfi. Mynd: DV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir karlmenn og ein kona eru ákærð í Gufunesmálinu svonefnda fyrir manndráp, frelsissviptingu, fjárkúgun og peningaþvætti þann 12. mars síðastliðinn. Þáttur þriggja er stærstur í málinu en það eru þeir  Stefán Blackburn, Lúkas Geir Ingvarsson og Matthías Björn Erlingsson sem allir eru ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán. Að auki eru karlmaður og kona, bæði undir tvítugu, ákærð fyrir peningaþvætti og hlutdeild í frelsissviptingu og ráni.

Þann 12. mars síðastliðinn var Hjörleifs Hauks Guðmundssonar, 65 ára, saknað frá heimili sínu í Þorlákshöfn. Hann fannst þungt haldinn þann morgun í Gufunesi í Reykjavík og lést á sjúkrahúsi skömmu síðar.

Þrír ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán

Eins og áður segir eru Stefán, Lúkas Geir og Matthías Björn ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán með því að hafa þriðjudaginn 11. mars 2025, í félagi, svipt Hjörleif lífi en ákærðu beittu hann, þann 10. og 11. mars 2025, í aðdraganda andláts hans margþættu og hrottafengnu líkamlegu ofbeldi sem leiddi til banvænna áverka.

Í ákærunni er farið ítarlega yfir atburðarásina sem leiddi til andláts Hjörleifs. Kemur fram að hinir ákærðu hafi svipt hann frelsi sínu að kvöldi mánudagsins 10. mars 2025, í um fimm klukkustundir og er þeim gefið að sök að hafa beitt hann, á meðan á frelsissviptingunni stóð, umfangsmiklu ofbeldi í þeim tilgangi að ná af honum fjármunum.

Aburðarásin hófst með því að Stefán og Lúkas Geir fengu Hjörleif, með aðstoð ungu konunnar, til að yfirgefa heimili sitt í Þorlákshöfn, um kl. 21:43, og koma út í bifreið fyrir utan. Í kjölfarið óku þeir með hann að Hellisheiðarvirkjun, en aksturinn tók um 50 mínútur.

Í bifreiðinni eru Stefán og Lúkas Geir sagðir hafa beitt Hjörleif hrottalegu ofbeldi, meðal annars með þeim afleiðingum að fimm tennur brotnuðu úr munni hans. Markmiðið var að reyna að fá Hjörleif til að gefa upp aðgangsorð að heimabanka sínum. Þá kemur fram að Stefán og Lúkas Geir hafi sett poka yfir höfuð Hjörleifs.

Um klukkustund síðar, upp úr hálf tólf, kom Matthías Björn, að beiðni Stefáns, akandi á bifreið sinni að Hellisheiðarvirkjun.

Í framhaldi hjálpuðust þeir að við að færa Hjörleif, sem þá var með poka yfir höfði sínu, yfir í bifreið Matthíasar Björns. Þaðan ók hópurinn að iðnaðarhúsnæði á Kjalarnesi þar sem hrottalegt ofbeldi gegn Hjörleifi er sagt hafa haldið áfram, bæði með höggum, spörkum og ótilgreindu áhaldi. Á meðan á ofbeldinu stóð hafi Hjörleifur ítrekað verið krafinn um aðgangsorð að heimabanka sínum.

Rétt fyrir klukkan tvö um nóttina á hópurinn að hafa ekið að leiksvæði á Gufunesi og þar inn á göngustíg. Þar hélt ofbeldið áfram sem endaði með því að hinir ákærðu komust inn í heimabanka Hjörleifs og millifærðu þaðan 3 milljónir króna inn á bankareikning ungs karlmanns sem ekki virðist hafa verið á staðnum samkvæmt ákærunni. Sá millifærði síðan peningana áfram inn á reikning Matthíasar eins og kemur fram í ákærunni.

Eftir að hafa komist yfir peningana skildu þremenningarnir Hjörleif eftir helsærðan og bjargarlausan, einungis klæddan nærbuxum, á göngustígnum. Þar lá hann í tæpar fimm klukkustundir þar til að hann fannst meðvitundarlaus. Var hann fluttur á spítala þar sem hann lést stuttu síðar af áverkum sínum, sem voru einkum á brjóstkassa og andliti sem olli mikilli riðlun á öndunarstarfsemi, eins og segir í ákærunni.

Áverkum sem Hjörleifur hlaut er lýst með ítarlegum hætti í ákærunni og er það hrollvekjandi lesning sem lesendum er hlíft við.

Ákærðir fyrir tilraun til fjárkúgunar

Að auki eru Stefán, Lúkas Geir og Matthías Björn  ákærðir fyrir tilraun til fjárkúgunar með því að hafa í félagi mánudagskvöldið 10. mars 2025, fyrst rétt fyrir miðnætti hringt úr símtæki Matthíasar Björns, í eiginkonu Hjörleifs, og meò hótunum um að beita Hjörleif líkamlegu ofbeldi og reynt að hafa af henni fé, 3.000.000 kr,, og nokkru síðar og þá hótað að beita Hjörleif frekara ofbeldi ef eiginkona hans gæfi ekki upp aðgangsorð að heimabanka hans.

Ákærð fyrir peningaþvætti og hlutdeild í frelsissviptingu og ráni

Auk þremenninganna er ungur karlmaður, fæddur 2006, ákærður fyrir að hafa tekið við millifærslunni úr heimabanka Hjörleifs, vitandi að um var að ræða ávinning brots, og millifært síðan upphæðina inn á bankareikning Matthíasar Björns.

Þá er ung kona, fædd 2005, ákærð fyrir að hafa sett sig í samband við Hjörleif og fengið hann til að yfirgefa heimili sitt og út í bifreið þar sem þremenningarnir biðu hans. Er henni gefið að sök að hafa verið kunnugt um hvað biði Hjörleifs þar og að tilgangurinn hafi verið að hafa af honum fé.

Um 30 milljónir í bótakröfum

Einkaréttarkröfur eru lagðar fram í ákæru. Fyrir hönd eiginkonu Hjörleifs er krafist að ákærðu veròi sameiginlega gert að greiða henni skaðabætur að fjárhæð 11.520.864 kr. auk vaxta, og bætur vegna missis framfæranda 11.047.491 kr. auk vaxta. Einnig er þess krafist að ákærðu verði gert að greiða sameiginlega málskostnað að skaðlausu eða síðar framlögðum reikningi.

Fyrir hönd sonar Hjörleifs er krafist miskabóta að fjárhæð 8.000.000 kr. auk vaxta. Einnig er þess krafist að ákærðu verði gert að greiða sameiginlega málskostnað að skaðlausu eða síðar framlögðum reikningi.

Afar umfangsmikil rannsókn

Rannsókn málsins var afar umfangsmikil og alls höfðu á tímabili tíu stöðu sakbornings og þá sátu um tíma sjö einstaklingar í gæsluvarðhaldi. 

Þremenningarnir sem sakaðir eru um alvarlegustu brotin hafa verið í gæsluvarðhaldi frá 12. mars, daginn sem Hjörleifur fannst í Gufunesi. Farið var fram á fjögurra vikna framlengingu yfir tveimur þeirra í morgun, sá þriðji hefur hafið afplánun dóms vegna annars máls og því ekki þörf á áframhaldandi gæsluvarðhaldi hans. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sæþór heldur naumlega velli hjá Sósíalistum – Ályktun ungra sósíalista um að hann skyldi stíga til hliðar olli usla

Sæþór heldur naumlega velli hjá Sósíalistum – Ályktun ungra sósíalista um að hann skyldi stíga til hliðar olli usla
Fréttir
Í gær

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“