Drengurinn, Legend Jenkins, var að labba út í búð ásamt tíu ára gömlum bróður sínum þegar hann varð fyrir jeppabifreið á leið yfir götu í Gastonia um kvöldmatarleytið þennan örlagaríka dag.
Hann var fluttur alvarlega slasaður á slysadeild og þaðan á Levine-barnaspítalann í Charlotte þar sem hann lést af sárum sínum síðar þetta sama kvöld.
Móðir bræðranna sagði að þetta hefði verið í fyrsta sinn sem þeim var hleypt einum út í búð saman.
Í frétt Fox News kemur fram að foreldrar Legend, Jessica Ivey og Sameule Jenkins, hafi verið handteknir fyrir manndráp af gáleysi (e. felony involuntary manslaughter) og vanrækslu barns.
Lögregla segir að börnin hafi verið án eftirlits og rökstyður ákvörðun sína með því að í atvikum sem þessum verði að draga fullorðna til ábyrgðar gagnvart skyldum sínum um að tryggja börnum sínum öruggt umhverfi.
Bifreiðinni var ekið af 76 ára gamalli konu og segir lögregla að ekkert bendi til þess að hún hafi ekið of hratt eða gerst brotleg við lög þegar slysið varð. Hún verður því ekki ákærð.
Kona sem varð vitni að slysinu segir að hún hafi séð Legend stíga út á götu og bróðir hans reynt að toga í hann en án árangurs. Kvaðst konan hafa verið hjá drengnum þar til sjúkraflutningamenn komu á vettvang og fluttu hann á sjúkrahús. „Ég vildi að hann vissi að hann væri ekki einn,“ sagði konan.
Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir fjölskylduna á vefnum GoFundMe.