fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Pressan

Trump útilokar ekki að náða P. Diddy

Pressan
Miðvikudaginn 4. júní 2025 03:15

Diddy. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Töluverðar vangaveltur hafa verið um hvort Donald Trump muni náða P. Diddy ef svo fer að þessi heimsþekkti rappari verði fundinn sekur um þau brot sem honum eru gefin að sök en mál hans er nú fyrir dómi í New York.

Diddy er ákærður fyrir mansal með kynferðislega misnotkun í huga, að standa fyrir flutningi fólks í tengslum við vændi og skipulagða glæpastarfsemi.

Trump og P. Diddy voru góðir vinir hér áður fyrr og Trump sótti mörg af partíum Diddy. Það er fyrrum erkióvinur Diddy sem fyrstur setti fram spádóminn um að Trump muni náða þennan gamla vin sig og það útilokar Trump ekki að gera.

Fréttamaður Fox News spurði Trump út í hugsanlega náðun á fréttamannafundi í Hvíta húsinu fyrir helgi. Hann sagðist ekki hafa fengið neina opinbera beiðni um hugsanlega náðun en lagði áherslu á að hann útiloki ekkert í þessum efnum.

„Ég mun örugglega skoða staðreyndirnar. Ef mér finnst að einhver hafi ekki hlotið sanngjarna málsmeðferð, þá skiptir engu hvort viðkomandi líkar við mig eða ekki,“ sagði Trump.

Þar vísaði hann til vináttu hans og Diddy hér áður fyrr. Eins og áður sagði, þá sótti Trump mörg af partíum Diddy og þegar hann hélt upp á þrítugsafmælið sitt mætti Trump fyrstur allra.

Samband þeirra breyttist þegar Trump hóf afskipti af stjórnmálum. „Honum líkaði mjög vel við mig, en ég held að þegar ég byrjaði í pólitík, þá hafi sambandið hrunið miðað við hvað ég hef lesið, ég veit það ekki. Hann hefur ekki sjálfur sagt það við en ég las nokkur óheppileg ummæli í blaðinu,“ sagði Trump.

Það var Suge Knight, erkióvinur Diddy, sem afplánar 28 ára dóm fyrir manndráp af gáleysi, sem spáði því að Diddy muni á einn eða annan hátt komast hjá því að sitja í fangelsi.

„Ég held ekki að Diddy hafi áhyggjur af alríkismálinu og ef hann verður sakfelldur, þá mun Trump náða hann,“ sagði Suge Knight.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segja þetta fernt útskýra hvers vegna Musk er að ráðast á „stóra fallega fjárlagafrumvarpið“ – „DREPUM FRUMVARPIÐ.“

Segja þetta fernt útskýra hvers vegna Musk er að ráðast á „stóra fallega fjárlagafrumvarpið“ – „DREPUM FRUMVARPIÐ.“
Pressan
Í gær

Umfangsmikil leit að föður sem grunaður er um að hafa myrt þrjár dætur sínar

Umfangsmikil leit að föður sem grunaður er um að hafa myrt þrjár dætur sínar
Pressan
Í gær

Fyrrum lögregluforingi flúði úr fangelsi á ævintýralegan hátt

Fyrrum lögregluforingi flúði úr fangelsi á ævintýralegan hátt
Pressan
Í gær

Fékk nóg eftir 25 ára hjónaband – Stuttu síðar kynntist hann draumadísinni en þá hófst önnur martröð

Fékk nóg eftir 25 ára hjónaband – Stuttu síðar kynntist hann draumadísinni en þá hófst önnur martröð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir að stutt kunni að vera í að Kínverjar ráðist á Taívan

Segir að stutt kunni að vera í að Kínverjar ráðist á Taívan
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leyniþjónustan sögð leita leiða til að fá Trump til að fylgjast betur með – Teiknimyndir, sprengingar og útsendingar í anda FOX-fréttastofunnar

Leyniþjónustan sögð leita leiða til að fá Trump til að fylgjast betur með – Teiknimyndir, sprengingar og útsendingar í anda FOX-fréttastofunnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrsta stefnumótið endaði hræðilega

Fyrsta stefnumótið endaði hræðilega