fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Pressan

Krumpuð hjálparbeiðni á salerni skyndibitastaðar bjargaði lífi hennar

Pressan
Þriðjudaginn 3. júní 2025 16:30

Starfsmaðurinn Eleanor Coffee ákvað að skoða miðann í stað þess að henda honum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Krumpaður miði á salerni skyndibitastaðarins Jersey Mike’s Subs kann að hafa bjargað lífi konu og leitt yfirvöld í Flórída að húsi þar sem konan fannst. Kærasti konunnar, Jordan Williams, 34 ára, var handtekinn á vettvangi og ákærður fyrir alvarlega líkamsárás með banvænu vopni, mannrán og frelsissviptingu, alvarlegt brot og minniháttar líkamsárás og kyrkingarárás.

Starfsmaður skyndibitastaðarins fann miðann, sem innihélt beiðni um hjálp og heimilisfang íbúðar í nágrenninu, og hringdi á lögregluna.

„Það var lítill krumpaður pappírsmiði sem var búið að troða  við hliðina á klósettpappírshaldaranum okkar og miðinn leit út fyrir að vera rusl,“ sagði starfsmaðurinn Eleanor Coffee við NBC 15. „Á miðanum stóð: „Vinsamlegast hjálpið mér. Ég er á þessu heimilisfangi í Navarre. Þið verðið að hringja í lögregluna og fá hana til að gera velferðarathugun (e. Wellness Check).’“

Starfsmenn hringdu á lögregluna sem fór á viðkomandi heimilisfang. Þar fann hún 29 ára gamla konu sem hafði verið misþyrmt og lýsti konan því yfir að hún hefði mátt þola „ítrekaðar árásir, hótanir með vopnum og henni hefði verið haldið í einangrun í nokkra mánuði“, samkvæmt fréttatilkynningu lögreglunnar.

Konan var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar vegna mikilla áverka, þar á meðal gruns um beinbrot.

Í fréttatilkynningunni kom fram að Williams hefði ítrekað komið við sögu vegna heimilisofbeldis. Williams er glímumaður í félagi á svæðinu og keppir undir nafninu „Jayden Steele“. Hann var færður í fangelsið í Santa Rosa-sýslu á fimmtudag og gert að vera í haldi án tryggingar.  Gert er ráð fyrir að ákæra verði gefin út 19. júní.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Uppeldisráð 81 árs DeNiro er einfalt – Börnin á aldrinum tveggja til 57 ára

Uppeldisráð 81 árs DeNiro er einfalt – Börnin á aldrinum tveggja til 57 ára
Pressan
Í gær

Segja þetta fernt útskýra hvers vegna Musk er að ráðast á „stóra fallega fjárlagafrumvarpið“ – „DREPUM FRUMVARPIÐ.“

Segja þetta fernt útskýra hvers vegna Musk er að ráðast á „stóra fallega fjárlagafrumvarpið“ – „DREPUM FRUMVARPIÐ.“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harry leitaði ráða um hvernig hann gæti breytt ættarnafni sínu

Harry leitaði ráða um hvernig hann gæti breytt ættarnafni sínu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir að stutt kunni að vera í að Kínverjar ráðist á Taívan

Segir að stutt kunni að vera í að Kínverjar ráðist á Taívan
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óttast að Rússar grípi til kjarnavopna eftir atburðina um helgina

Óttast að Rússar grípi til kjarnavopna eftir atburðina um helgina
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leyniþjónustan sögð leita leiða til að fá Trump til að fylgjast betur með – Teiknimyndir, sprengingar og útsendingar í anda FOX-fréttastofunnar

Leyniþjónustan sögð leita leiða til að fá Trump til að fylgjast betur með – Teiknimyndir, sprengingar og útsendingar í anda FOX-fréttastofunnar