Samúel Ívar Árnason hefur undanfarin tvö ár unnið að því að safna upplýsingum um aðdraganda þess að Stefán Arnar Gunnarsson bróðir hans féll fyrir eigin hendi í marsmánuði árið 2023. Arnar starfaði bæði sem handboltaþjálfari hjá HK og umsjónakennari í Kópavogsskóla en hann hafði skömmu fyrir andlát sitt fengið veður af alvarlegum ásökunum á hendur sér sem hann fékk þó aldrei að vita nákvæmlega hverjar voru.
Sjá einnig: Samúel segir aðför að mannorði Arnar bróður síns hafa ýtt honum fram af brúninni
Samúel hefur komist að því að málið hafi hafist með nafnlausri tilkynningu til samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála, en það embætti var sett á fót af Barna- og menningarmálaráðuneytinu og er ætlað að sjá um viðkvæm mál sem komið geta upp innan Íþróttasambands Íslands. Ásökunin sem sett var fram í þeirri tilkynningu var óljós og sendandi kvittaði undir hana með bæði fölsku nafni og símanúmeri.
,,Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsmála fær þessa tilkynningu og þessi tilkynning, hún er, komumst við að síðar. Hún er nafnlaus. Hún er með netfanginu gunnar@gunnar.is sem enginn svarar ef er sent á, og símanúmeri Dominos 5812345. Þetta er í rauninni gögnin sem að samskiptaráðgjafinn hefur til að byrja á að fara að kanna einhverjar, eitthvað mál. Í því bréfi eru bara einhverjar dylgjur. Það er ekki; hann braut svona á þessum eða svona á þessum. Þú veist, það eru bara einhverjar dylgjur þarna,“ segir Samúel Ívar í viðtali við Frosta Logason í Spjallinu með Frosta.
Eftir að bréfið barst til samskiptaráðgjafans ákvað hann að hefja rannsókn á Arnari án þess að tilkynna honum sjálfum um það. Arnar þurfti sjálfur að óska eftir fundi með samskiptaráðgjafanum til að leita sér upplýsinga um málið en fékk í raun ekkert að vita á þeim fundi annað en að hann gæti í raun ekki starfað áfram sem handboltaþjálfari. Þannig gekk Arnar út af skrifstofu samskiptaráðgjafans í nagandi óvissu og vanlíðan og var allur skömmu síðar.
,,Það virðist vera að hún fari af stað með því að safna algjörlega einhliða upplýsingum. Sigurbjörg heitir hún sem er samskiptaráðgjafi þá. Og Þóra Sigfríður er náttúrulega eigandi stofunnar. Hún sat þessa fundi allavegana alltaf með samskiptaráðgjafa sem að Gestur og aðrir frá okkur hafa farið á. Og sat þennan fund líka með Gesti og Arnar veit ekkert um þetta. Hann veit ekki að hann sé til rannsóknar en þetta er sem sagt sautjánda janúar. Það sem gerist hérna á tveimur vikum er allt í einu er komin tilkynning inn til skólans. Þannig að eitthvað hefur verið í gangi þar sem að gerir það að verkum að fólk allt í einu fer að hafa verulegar áhyggjur af því að þarna sé kannski bara einhver stórhættulegur gaur að hann er bara að kenna hérna 5. bekk. Þannig að þau rannsaka eitthvað mál, láta hann aldrei vita hvað hann er sakaður fyrir, láta hann ekki vita að það sé verið að rannsaka hann og afgreiða hann með bréfi í pósti. Það er út af því að hann óskar eftir fundi sem hann hittir þetta fólk. Og hann tekur Gest vin sinn með sér. Á þessum fundi þá fær hann ekki að vita hverjar ásakanirnar eru, það má ekki segja honum það. Og hann spyr: Þannig að mér er bara frjálst að þjálfa hjá öðru félagi. Nei, við getum ekki gefið þér grænt ljós á það. Það var bara nei,. Þannig að hún ætlar ekki segja þeim hvað í rauninni hafði verið að saka Arnar um. Hún ætlar ekki gefa honum tækifæri á að svara fyrir það eða segja sína hlið á einhverjum álitamálum sem hafa komið upp.“
Segir Samúel að bróðir hans og vinur hans hafi alls ekki fengið að sjá bréfið með ásökuninni. Samskiptaráðgjafinn hafi heldur ekki getað sagt Arnari hvað var verið að saka hann um, en hún hafi sagt að það væri hægt að vísa í bréfið.
,,Ef hann ætlaði sér að fara að þjálfa annars staðar og hann átti atvinnuviðtal við austurrískt félagsliðið seinni partinn sama dag eða daginn eftir. Þeir fara út á þessum fundi og Gestur hefur sagt mér það margoft og bara frá fyrstu stundu: Þetta er versti fundur sem ég hef farið á. Því að Arnar er bara skilinn eftir með eitthvað óljóst hangandi yfir höfðinu á sér sem hann veit ekki hvað er. Og hann getur ekki svarað fyrir það og honum er ekki frjálst að fara að þjálfa einhvers staðar sem var hans ástríða. En þetta virðist bara hafa verið kornið sem fyllti mælinn hjá honum Arnari því að seinna um kvöldið slítur hann öll tengsl og hann hverfur í rauninni eftir þennan fund.“
Samúel hefur áður sagt frá því hvernig hann telji ásakanirnar hafa komið frá fólki úr hópi foreldra sem voru ósátt við Arnar sem þjálfara og vildu fá hann rekinn í þeirra von að börn þeirra fengju meiri möguleika í liðinu. Hann segist sannfærður um að vinnubrögð samskiptaráðgjafans hafi ýtt bróður sínum yfir brúnina og að vel hefði mátt koma í veg fyrir þann harmleik sem hinar nafnlausu ásakanir höfðu í för með sér.
Arnar fannst látinn í fjöruborðinu við Fitjabraut í Reykjanesbæ 2. apríl 2023, hans hafði þá verið leitað í mánuð.
,,Allir sem höfum komið að því að rýna í þetta. Okkur finnst hrópandi að vinnubrögðin sem voru viðhöfð, þau finnst okkur hafa ýtt honum í rauninni yfir brúnina. Við erum sannfærð um það að betri vinnubrögð hefðu afstýrt þessu. Þetta eru um fimm vikur og ég veit að í millitíðinni fór þetta embætti eða samskiptaráðgjafi og bar málið undir barnavernd sem sagði þeim: Hér er ekkert, látið málið niður falla.“
Aðspurður um hvort hann sé með það staðfest segir Samúel það hafa komið fram á fundi sem faðir hans og fleiri áttu með samskiptaráðgjafa.
,,Upplifun þeirra á þessum fundi með Arnari og Gesti, þær segja það þarna á þriðja fundinum: ,,það var mjög góður fundur, fundurinn gekk mjög vel.“ Og Gestur missti bara andlitið á þeim fundi og sagði: ,,Þetta er versti fundur sem ég hef nokkurn tíma farið á. Hvernig getið þið upplifað hann svona vel? Skiljið manninn eftir í lausu lofti með eitthvað óljóst hangandi yfir sig að hann fær engin svör, hann færekki ekki að vita neitt. Og svo á hann bara að labba út og brosa. Mismunandi upplifanir og allt það. En þetta er bara sitt hvor endinn á skalanum. ganga mjög vel eða það versta sem þú nokkurn tímann tekur þátt í.“
Samúel segir engan hjá HK, ÍSÍ eða samskiptaráðgjafa hafa boðið aðstandendum Arnars á fund. Hann hafi alltaf þurft að óska eftir fundi.
,,Við óskum eftir fundi fyrst við HK og þau í rauninni velja bara að að vilja ekki tjá sig meira um málið. Það er í rauninni harmað atburðinn, en ætla ekki að tjá sig frekar um málið. ÍSÍ hafði ég örlítið meiri von, ég fór dálítið þá leið af því að ég er með fullt af upplýsingum um eitthvað sem ég get ekki hundrað prósent sannað en líkurnar eru yfirgnæfandi og svo er annað sem ég veit fyrir víst. En þar eru nöfn og annað og ég hef aldrei viljað fara af stað með eitthvað sem eru persónulegar árásir.“
Segir Samúel að um sé að ræða nöfn og upplýsingar sem að væri gott fyrir ráðandi hlutlausan aðila að ræða við til að fá einhverja yfirsýn yfir það hvað gekk eiginlega á.
,,Það er ekki mitt hlutverk, ég er bara of tengdur málinu og er syrgjandi aðstandandi. Það er ekki mitt að gera það.“
Segist Samúel hafa farið á þrjá fundi með ÍSÍ þar á með framkvæmdastjóranum. Enginn þar ætli að taka á málinu.
,,Þeirra viðbrögð við þessum pistli voru þau að framkvæmdastjórinn hringdi í mig og það var svona fljótlega ljóst að aðalatriðið var í rauninni að það var rangfærsla í þessum pistli hjá mér og rangfærslan er sú að samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsmála, ég titla hana sem samskiptaráðgjafi ÍSÍ. Það var mjög mikilvægt að ég myndi leiðrétta þessa rangfærslu því að ÍSÍ kemur ekkert að þessu máli.“
Samúel óskaði næst eftir fundi hjá barna- og menntamálaráðuneyti og fór á fund þar með föður sínum. Segir hann alla hafa verið tilbúna að hitta þá og ræða við þá.
,,Og sýna okkur fulla virðingu og nærgætni þegar að við ræðum við þau. En það er enginn sem er til í að fara af stað. Upplýsingasöfnun, hún hefur öll komið frá syrgjandi fjölskyldu sem er að reyna að átta sig á því hvað gerðist. Það er enginn í hreyfingunni sem ætlar sér að grípa boltann og fara af stað. Þú veist, þetta endaði svona, hvað gekk á hérna á undan, hvernig getum við lært af þessu? Þannig að ef eitthvað sambærilegt gerist aftur, þá vitum við hvernig við eigum að tækla þetta. Og við erum ekkert að tækla þetta, því að þetta síðasta málið hans Arnars er eins illa gert og og ég bara get mögulega ímyndað mér. Skilaboðin frá barna- og menntamálaráðuneytinu voru í rauninni bara á þá leið að við gætum höfðað einkamál eða óskað eftir lögreglurannsókn. Barna- og menntamálaráðuneytið er yfir bæði ÍSÍ og samskiptaráðgjafanum, en er einhver þarna sem að er að fylgjast með því hvað er í gangi? Ég velti því fyrir mér, því að þú veist, ég veit líka að árið sem að þetta hverfur, þá rennur samningurinn við þessa stofu út.“
Samúel segir samninginn hafa runnið út í árslok og verið endurnýjaður, um er að ræða sálfræðistofu sem mennta- og barnamálaráðuneytið gerir samning við um að taka á erfiðustu málum sem upp koma í íþróttahreyfingunni.
,,Gott og vel ef þetta eru sérfræðingar sem eru vel til þess fallnir, en það þarf samt einhver að hafa einhverja yfirsýn með þessu.“
,,Við vitum það öll, við fáum aldrei manninn til baka. Við ætlum að hreinsa mannorðið hans og við ætlum líka að reyna að stuðla að því að starfsumhverfið og að það verði einhver lærdómur dreginn. Eitthvað gerist sem að, þú veist, verður til þess að við getum horft til baka og sagt: Ókei, þú veist, það kom þó alla vega út að, þú veist, það er unnið vel og faglega með málið núna.“
Aðspurður um hvaða tilfinningar berjist innra með honum þegar hann heyrir fleiri fréttir af þessu embætti sem að eru svona til marks um mikil ófagmennska og léleg vinnubrögð svarar Samúel:
,,Bara sorgmæddur og ég verð pínulítið reiður líka að við skulum í alvörunni ekki ætla að læra neitt af þessu. Ef þetta mál Arnars og þessi lýsing á hvernig er núna sótt að Brynjari, alveg óháð því hvort þú ert stuðningsmaður hans eða sammála honum um þjálfaraaðferðir, alveg sama. Þetta eru vinnubrögðin sem eru í gangi. Þú veist, ef það eru fleiri sem hafa lent í því þá bara hvet ég þau til þess að stíga fram og segja frá því. Því að við getum ekki haft það þannig að hér sé bara eftirlitslaust einkafyrirtæki sem fái viðkvæmustu upplýsingarnar eða viðkvæmustu málin í íþróttahreyfingunni. Ef þau ætla að vinna þetta svona og það er enginn sem getur stoppað þau af og það er enginn sem getur leiðrétt þau og þau sigla bara áfram eins og þeim sýnist. Þú veist, það er ekki hægt að hafa það þannig. Maður hefur lært mikið á því að vera í samskiptum við þessar stofnanir sem maður heldur að séu að passa upp á þetta. Og maður kemur alltaf bara auga á einhverjar brotalamir og þetta aðgerðaleysi. Ætlum við að vera í heimsmælikvarða að sópa málum undir teppið og skorast undan ábyrgð?Er það framtíðarsýnin hjá okkur í íþróttahreyfingunni?“
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent er á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.