fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
433Sport

Sjáðu myndband af ógeðfelldu atviki sem er í mikilli dreifingu – Fleygðu honum niður stiga í gær

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 11. maí 2026 10:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmanni Arsenal var ýtt niður stiga á London Stadium eftir átök við stuðningsmenn West Ham United á leik liðanna í gær.

Miðað við myndbönd sem hafa farið í mikla dreifingu á samfélagsmiðlum virðist hafa komið til átaka eftir að upp komst um stuðningsmenn Arsenal sem sátu í heimastúku West Ham.

Lögreglan í London hefur staðfest að fjórir einstaklingar hafi verið handteknir í tengslum við uppákomuna, sem má sjá hér neðar.

Arsenal vann leikinn sjálfan á dramatískan hátt 0-1, en mark var dæmt af West Ham eftir skoðun í VAR í lokin.

Úrslitin þýða að Skytturnar eru í bílstjórasætinu um Englandsmeistaratitilinn fyrir lokaleikina gegn Burnley og Crystal Palace en útlitið er dökkt fyrir Hamrana í fallbaráttunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Setur spurningamerki við hvernig var talað í Hafnarfirði fyrir mót – „Kannski hrista menn hausinn en þora ekki að segja neitt“

Setur spurningamerki við hvernig var talað í Hafnarfirði fyrir mót – „Kannski hrista menn hausinn en þora ekki að segja neitt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arnar var nálægt því að taka við starfi í Færeyjum – „Mér fannst þetta ógeðslega leiðinlegt“

Arnar var nálægt því að taka við starfi í Færeyjum – „Mér fannst þetta ógeðslega leiðinlegt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

KR-ingar óstöðvandi – Dramatík víða í kvöld

KR-ingar óstöðvandi – Dramatík víða í kvöld
433Sport
Fyrir 2 dögum

Páfinn gæti tekið óvænt skref

Páfinn gæti tekið óvænt skref
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gerðist í fyrsta sinn í þessari viku

Gerðist í fyrsta sinn í þessari viku
433Sport
Fyrir 2 dögum

City skoðar það að kaupa Vinícius Júnior í sumar

City skoðar það að kaupa Vinícius Júnior í sumar