
Röðun efstu þriggja sæta í ensku úrvalsdeildinni væri eins þó ekki væri notast við VAR í deildinni.
Þetta er niðurstaða samantektar sem birtist í enskum miðlum í morgun. Arsenal er á toppnum, Manchester City í öðru sæti og Manchester United í því þriðja. Forysta Arsenal á City er fimm stig en væri aðeins eitt stig án VAR. Þá á City leik til góða. United væri með 65 stig, eins og staðan er í raunheimum einnig.
Sömu þrjú lið væru í fallsæti en Brighton og Leeds hafa tapað mest á VAR, væru þremur sætum ofar og fyrrnefnda liðið í Meistaradeildarsæti. Liverpool og Brentford hafa grætt mest og væru þremur sætum neðar án VAR.
Hér að neðan má sjá hvernig taflan væri án VAR.
