fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
433Sport

Telur að eiginmaður sinn hafi tekið eigið líf eftir að hafa orðið fyrir einelti í starfi

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 8. maí 2026 10:00

Debbie og Beard

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiginkona fyrrverandi knattspyrnustjóra hefur lýst því fyrir dómi að hún telji að eiginmaður hennar hafi orðið fyrir einelti í starfi áður en hann tók eigið líf.

Matt Beard, fyrrum þjálfari kvennaliðs Liverpool, lést 47 ára gamall í september á síðasta ári eftir að hafa sagt upp starfi sínu hjá Burnley mánuði áður.

Við yfirheyrslu fyrir rétt í Wales kom fram að fjölskylda hans hefði áhyggjur af líðan hans eftir dvölina hjá Burnley. Eiginkona hans, Debbie Beard, sagði að hann hefði ekki verið ánægður í starfi og að hann hefði ekki fengið að yfirgefa félagið á eigin forsendum.

„Hann hætti ekki til að fara annað, heldur vegna þess að honum leið illa. Ég tel að þeir hafi lagt hann í einelti,“ sagði hún.

Fram kom að andleg líðan Beard hefði versnað eftir að hann hætti hjá Burnley og að það hefði verið kveikjan að alvarlegri þróun.

Dómari málsins hefur ákveðið að kalla eftir frekari gögnum, meðal annars frá knattspyrnuumboðsmanni og samtökum knattspyrnustjóra, til að varpa frekara ljósi á málið.

Beard náði miklum árangri á ferli sínum, þar á meðal með Chelsea og Liverpool þar sem hann vann tvo Englandsmeistaratitla í röð.

Útför hans var fjölmenn og sóttu hana fjölmargir úr knattspyrnuheiminum.

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Palace komið í úrslit og mæta þar spænsku félagi

Palace komið í úrslit og mæta þar spænsku félagi
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Aston Villa slátraði Forest til að tryggja sig í úrslitaleikinn – Mæta þar Freiburg

Aston Villa slátraði Forest til að tryggja sig í úrslitaleikinn – Mæta þar Freiburg
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Real Madrid mun refsa leikmönnum sínum harðlega – Slógust og annar þeirra endaði á sjúkrahúsi

Real Madrid mun refsa leikmönnum sínum harðlega – Slógust og annar þeirra endaði á sjúkrahúsi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Mark Kane gæti reynst dýrmætt eftir allt saman

Mark Kane gæti reynst dýrmætt eftir allt saman
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Algjör u-beygja hjá Liverpool vegna mótmæla stuðningsmanna

Algjör u-beygja hjá Liverpool vegna mótmæla stuðningsmanna
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Endar Marcus Rashford hjá Arsenal?

Endar Marcus Rashford hjá Arsenal?
433Sport
Í gær

Þessi tvö félög sögð leiða kapphlaupið um Casemiro

Þessi tvö félög sögð leiða kapphlaupið um Casemiro
433Sport
Í gær

Gæti Harry Kane endað hjá Manchester United í sumar?

Gæti Harry Kane endað hjá Manchester United í sumar?