

Luis Enrique heldur áfram að vekja athygli eftir að hafa stýrt Paris Saint-Germain í úrslit Meistaradeildarinnar annað árið í röð en ákvörðun hans utan vallar hefur einnig vakið athygli.
Spænski þjálfarinn, sem fagnar 56 ára afmæli sínu, hafði bókað borð á lúxusveitingastaðnum Prunier í Paris til að halda upp á daginn með sínu fólki. Veitingastaðurinn, sem er staðsettur nálægt Arc de Triomphe, er þekktur fyrir kavíar og hágæða sjávarrétti.
Þrátt fyrir það mætti Luis Enrique ekki sjálfur í afmælisboðið.
Þjálfarinn ákvað þess í stað að halda einbeitingu sinni að verkefninu fram undan, þar sem PSG undirbýr sig nú fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Búdapest.
Luis Enrique hefur átt frábært tímabil með PSG og liðið tryggði sér sæti í úrslitum eftir jafntefli gegn Bayern Munich.
Forseti félagsins, Nasser Al-Khelaifi, hrósaði þjálfaranum eftir leikinn og sagði ráðningu hans eina af sínum bestu ákvörðunum.
PSG stefnir nú á sinn fyrsta Meistaradeildartitil og virðist Luis Enrique tilbúinn að leggja allt undir til að ná því markmiði, jafnvel þótt það þýði að sleppa eigin afmælisveislu.