

Manchester United gæti fengið óvæntan fjárhagslegan styrk fyrir sumargluggann ef Mason Greenwood verður seldur frá Marseille í sumar.
Greenwood hefur átt sterkt tímabil í Frakklandi og skorað 25 mörk auk þess að leggja upp tíu í 42 leikjum. Frammistaða hans hefur vakið athygli hjá Juventus, sem er sagt hafa mikinn áhuga á að fá hann til félagsins.
Samkvæmt ítölskum miðlum gæti Marseille neyðst til að selja Greenwood af fjárhagsástæðum ef félagið nær ekki sæti í Meistaradeild Evrópu. Marseille er nú utan topp þriggja í frönsku deildinni og gæti því misst af mikilvægum tekjum.
Talið er að franska félagið myndi fara fram á að minnsta kosti 43 milljónir punda fyrir framherjann.
Manchester United á söluprósentu í Greenwood eftir að hafa selt hann til Marseille árið 2024 og myndi því fá hluta af hugsanlegri sölu.