fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
433Sport

Ungstirni varð fyrir stunguárás í Danmörku

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alamara Djabi, leikmaður danska liðsins Midtjylland, varð fyrir alvarlegri stunguárás í Herning aðfaranótt sunnudags. Ástand hans er stöðugt.

Þessi 19 ára gamli miðjumaður gekkst undir tvær aðgerðir og var um tíma í dái, en er nú vaknaður og er sagður á batavegi miðað við aðstæður.

Félagið staðfesti í yfirlýsingu að það sé í nánu samstarfi við yfirvöld og styðji leikmanninn og fjölskyldu hans, en muni ekki tjá sig frekar meðan rannsókn lögreglu stendur yfir.

Lögregla í Danmörku leitar nú að tvítugum manni í tengslum við árásina.

Djabi gekk til liðs við Midtjylland síðasta sumar og hefur meðal annars komið við sögu í undankeppni Evrópudeildarinnar, en ekki fest sig í sessi í aðalliði félagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Segir frá því þegar frændur tókust á – Endaði með 24 spor í andliti

Segir frá því þegar frændur tókust á – Endaði með 24 spor í andliti
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Spá því að Blikar verji titilinn en að Valur verði í tómu brasi

Spá því að Blikar verji titilinn en að Valur verði í tómu brasi
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Lést um helgina nokkrum dögum eftir að hafa eignast sitt annað barn

Lést um helgina nokkrum dögum eftir að hafa eignast sitt annað barn
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

United tekur fyrsta skrefið – Sagðir hafa boðið væna summu í vonarstjörnu Brasilíu

United tekur fyrsta skrefið – Sagðir hafa boðið væna summu í vonarstjörnu Brasilíu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

United og spænski risinn sögð skoða Emery

United og spænski risinn sögð skoða Emery
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

PSG skoðar tvo kosti í sóknarlínu sína

PSG skoðar tvo kosti í sóknarlínu sína