
Draumur Mikel Arteta er að fá Nico Williams til Arsenal í sumar samkvæmt vefmiðlinum Teamtalk.
Williams spilar með Athletic Bilbao og hefur verið afar eftirsóttur síðustu ár. Hann skrifaði hins vegar undir nýjan samning síðasta sumar, sem inniheldur þó klásúlu sem gerir öðrum félögum kleift að kaupa hann á tæpar 80 milljónir punda.
Arsenal þyrfti að selja leikmenn til að fjármagna kaupin og er Gabriel Martinelli, sem er kantmaður eins og Williams, til að mynda nefndur sem kostur þar .
Williams er sagður opinn fyrir brottför frá Athletic Bilbao fyrr eða síðar þar sem hann vill berjast um stærstu titlana sem eru í boði.