

Liverpool hefur sett Yan Diomande, kantmann RB Leipzig, efst á óskalista sinn sem mögulegan arftaka Mohamed Salah.
Samkvæmt fréttum hefur 19 ára leikmaðurinn vakið mikla athygli innan félagsins og hefur hugmyndin um að fá hann til Anfield fengið grænt ljós frá stjórnendum Liverpool.
Salah, sem er 33 ára, gæti verið á förum á næstu misserum og því er félagið þegar farið að undirbúa framtíðina. Diomande er talinn einn efnilegasti kantmaður Evrópu og passar vel inn í leikstíl Liverpool.
Ekki hafa farið fram formlegar viðræður enn sem komið er, en áhuginn er sagður mikill.
Liverpool fylgist því grannt með þróun mála og gæti reynt að landa leikmanninum á næsta félagaskiptatímabili.