Taiwo Leo Atieno fyrrum leikmaður Luton og fleiri liða er ákærður fyrir ofbeldi í nánu sambandi gegn Keisha Buchanan söngkonu Sugababes.
Sugababes var vinsæl hljómsveit á árum áður en en samband Atieno og Buchanan stóð yfir í 13 ár.
Frá árunum 2015 til 2018 er Atieno sakaður um að hafa beitt hana ítrekuðu ofbeldi, bæði líkamlegu og andlegu.
Buchanan mátti sem dæmi ekki vera með rauðan varalit samkvæmt þeim reglum sem Atieno setti fyrir hana.
Hann stjórnaði því hvenær hún fór í sturtu og valdi svo þá daga hvenær hún mátti fara í ræktina. Þetta kemur fram í ákærunni.
Atieno er sakaður um að hafa stjórnað fjármálum hennar og skammtað henni peninga. Hann stjórnaði lífi hennar frá degi til dags og setti henni reglur með andlegu ofbeldi.
Atieno lék með Walsall, Nuneaton Borough, Rochdale, Chester City, Kidderminster Harriers, Darlington, Tamworth, Stevenage, Torquay United og Barnet á ferli sínum ásamt því að vera landsliðsmaður Kenýa.
Buchanan hafði fengið nálgunarbann gegn Atieno eftir að samband þeirra tók enda og er hann ákærður fyrir að hafa brotið það sex sinnum.