Ofurtölvan fræga hefur spáð í spilin fyrir næsta tímabil en að þessu sinni er fjallað um næst efstu deild Englands, Championship.
Ofurtölvan spáir nýliðum Wrexham góðu gengi og telur að liðið muni enda í sjötta sæti og komast í umspil um sæti í efstu deild.
Southampton og Sheffield United fara beint upp en Ipswich, Leicester og Coventry eru einnig í umspilinu.
Fallbaráttan verður áhugaverð samkvæmt ofurtölvunni en Hull mun enda á botninum og fellur ásamt Derby og Watford.
Oxford United mun koma mörgum á óvart og heldur sér uppi með tveimur stigum meira en þau lið sem falla.