Það er ekki bara verið að hugsa til nútíðar á Anfield í ár því félagið er að festa kuap á miklu efni í markið, er horft á hann sem framtíðar markvörð.
Liverpool hefur gengið frá samkomulagi um kaup á Armin Pecsi frá Puskas Akademia í Ungverjalandi.
Er hann dýrasti leikmaður sem félagið hefur selt og hefur Pesci samþykkt tilboð Liverpool.
Pesci er tvítugur markvörður sem nokkur félög hafa fylgst með undanfarið, Liverpool sannfærði hann um að koma.
Pesci er ekki eini markvörðurinn sem Liverpool fær í sumar en Giorgi Mamardashvili kemur einnig til félagsins, fyrir er Alisson Becker hjá félaginu.