Íslenska karlalandsliðið spilaði vináttulandsleik í kvöld en leikið var við Skota á Hampden Park í Glasgow í Skotlandi.
Arnar Gunnlaugsson var þarna að stýra sínum þriðja landsleik en fyrstu tveir töpuðust gegn Kósovó í Þjóðadeildinni.
Ísland er að undirbúa sig fyrir mikilvæg verkefni í undankeppni HM en fyrsti leikurinn er gegn Aserbaídsjan í september.
Þetta var annar af tveimur vináttulandsleikjum Íslands í þessu verkefni en næsti leikur er gegn Norður-Írlandi á þriðjudag.
Ísland vann magnaðan sigur á Skotum á erfiðum útivelli í kvöld og tók forystuna snemma með frábæru marki en Andri Lucas Guðjohnsen skoraði með virkilega góðu skoti.
John Souttar jafnaði metin fyrir Skota á 25. mínútu en Ísland komst aftur yfir undir lok fyrri hálfleiks með sjálfsmarki Lewis Ferguson.
Guðlaugur Victor Pálsson innsiglaði svo sigur Íslands snemma í seinni hálfleik með mjög góðum skalla og 3-1 sigur staðreynd.