Angel Gomes miðjumaður enska landsliðsins hefur valið það að semja við Marseille en hann kemur frítt til félagsins.
Gomes hefur verið hjá Lille í Frakklandi síðustu ár og ákvað að halda sig innan landsins.
Samningur Gomes við Lille rennur út um mánaðarmótin og fer hann þá frítt til Marseille.
Félög í Þýskalandi, Englandi og Ítalíu höfðu áhuga á að fá Gomes en hann taldi best fyrir sig að spila áfram í Frakklandi.
Gomes var nokkuð orðaður við Tottenham en svo virðist sem áhuginn þar hafi verið í orði en ekki á borði.