fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
433Sport

Einkunnir eftir frábæran fyrsta sigur Arnars með landsliðið – Elías Rafn bestur og setur alvöru pressu á þjálfarann

433
Föstudaginn 6. júní 2025 20:42

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska landsliðið vann frækinn 1-3 sigur á Skotlandi í æfingaleik í kvöld, er þetta fyrsti sigur liðsins þar í landi.

Andri Lucas Guðjohnsen kom liðinu yfir í fyrri hálfleik með frábæru marki en Skotarnir jöfnuðu.

Það var svo sjálfsmark skoska liðsins sem kom Íslandi yfir og þannig stóðu leikar í hálfleik. Það var svo Guðlaugur Victor Pálsson sem tryggði 1-3 sigur í síðari hálfleik með geggjuðu skallamarki.

Þetta er fyrsti sigur liðsins undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar. Einkunnir að mati 433.is eru hér að neðan.

Elías Rafn Ólafs­son – 8 – Maður leiksins
Varði virkilega vel og margar hreinlega stórkostlegar vörslur. Sá til þess að liðið vann leikinn og setur alvöru pressu á Arnar að spila næstu leiki en Hákon Rafn Valdimarsson hefur átt stöðuna undanfarið.

Guðlaug­ur Victor Páls­son (´60) – 8
Kröftug frammistaða í vörninni og glæsilegt mark til að toppa góðan leik.

Getty Images

Sverr­ir Ingi Inga­son (´77) – 8
Hreint út sagt frábær í vörninni og sá til þess að liðið átti aldrei í vandræðum með að verjast leik Skota.

Hörður Björg­vin Magnús­son (´45) – 5
Frábært að sjá Hörð aftur sem var að byrja sinn fyrsta fótboltaleik í tæplega tvö ár. Gerði sig sekan um mistök í marki skoti en mikilvægar mínútur.

Mika­el Eg­ill Ell­erts­son – 7
Sem vinstri bakvörður gerði Mikael vel og klárlega kostur í þessa stöðu

Stefán Teit­ur Þórðar­son (´72) – 7
Gerði vel á miðsvæðinu, stór og sterkur og gefur íslenska liðinu mikið.

Al­bert Guðmunds­son – 8
Frábær í leiknum, gerði vel í að sækja boltann niður og bera upp spil íslenska liðsins.

Getty Images

Ísak Berg­mann Jó­hann­es­son (´72) – 7
Fékk að byrja landsleik í sinni stöðu sem hefur ekkert gerst alltof oft, gerði virkilega vel.

Há­kon Arn­ar Har­alds­son – 7
Flottur leikur hjá Hákoni sem var fyrirliði liðsins í leiknum.

Andri Lucas Guðjohnsen – 8
Geggjað mark til að koma liðinu á blað, gerði svo vel í því að pressa og halda í boltann fyrir liðið.

Jón Dag­ur Þor­steins­son (´72) – 7
Eftir erfitt tímabil með félagsliði minnti Jón Dagur á ágæti sitt í kvöld.

Varamenn:
Daníel Leó Grétarsson (´45) 7
Dagur Dan Þórhallsson (´60) 6
Mikael Neville (´72) – Spilaði of lítið til að fá einkunn
Arnór Ingvi Traustason (´72) – Spilaði of lítið til að fá einkunn
Willum Þór Willumsson (´72) – Spilaði of lítið til að fá einkunn
Aron Einar Gunnarsson (´77) – Spilaði of lítið til að fá einkunn

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Til í að hjóla til Manchester ef Amorim tekur upp tólið

Til í að hjóla til Manchester ef Amorim tekur upp tólið
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gyokores sakar fjölmiðla um lygar: ,,Væri erfitt að snúa aftur í kuldann“

Gyokores sakar fjölmiðla um lygar: ,,Væri erfitt að snúa aftur í kuldann“
433Sport
Í gær

Ofurtölvan spáir því að þrjú fyrrum úrvalsdeildarfélög falli

Ofurtölvan spáir því að þrjú fyrrum úrvalsdeildarfélög falli
433Sport
Í gær

Embættismenn segja að áfengissala verði ekki heimiluð á HM 2034

Embættismenn segja að áfengissala verði ekki heimiluð á HM 2034