Joao Palhinha miðjumaður frá Portúgal hafði verið á óskalista FC Bayern um langt skeið þegar félagið klófesti hann síðasta sumar.
Palhinha kom til Bayern frá Fulham en hann hafði sex mánuðum áður verið mjög nálægt því að fara til féalgsins.
Palhinha er 29 ára gamall en hann átti mjög erfitt fyrsta tímabil í Þýskalandi.
Vincent Kompany treysti Palhinha ekki til að byrja marga leiki og segir Sky í Þýskalandi að mögulega verði hann seldur í sumar.
Palhinha er sagður vilja vera áfram en vitað er að lið á Englandi hefðu áhuga á að taka hann.