Real Madrid hefur sett það í forgang hjá sér að reyna að fá Ibrahima Konte varnarmann Liverpool frítt.
Samningur Konate við Liverpool rennur út næsta sumar og hefur Real Madrid sett sig í samband.
Real Madrid hefur verið klókt að krækja í leikmenn frítt og láta vita tímanlega af áhuga sínum.
Konate er 26 ára gamall og hefur átt góða spretti, hann hefur hins vegar verið í vandræðum með að haldast heill.
Trent Alexander-Arnold fór frá Liverpool til Real Madrid á dögunum en samningur hans á Anfield var að renna út.