Bayern Munchen sýndi nýsjálenska liðinu Auckland enga miskunn í gær og vann það 10-0 á HM félagsliða. Það gerði Michael Olise ekki heldur í viðtali eftir leik.
Jamal Musiala gerði þrennu fyrir Þýskalandsmeistarana í gær en Olise gerði tvö mörk. Eftir leik var hann spurður að því hvort hann hafi fundið til með leikmönnum Auckland. Svarið var einfalt.
„Nei,“ sagði hann, en myndband af þessu er hér að neðan.