Paul Dickov, fyrrum leikmaður Manchester City, hvetur bæði Manchester United og Arsenal í að horfa til Crystal Palace í sumar.
Dickov er eins og aðrir á því máli að þessi lið þurfi níu fyrir næsta tímabil og er hans val Jean Philippe Mateta.
Mateta er mjög öflugur sóknarmaður og er lykilmaður hjá Palace en hann hefur skorað 30 mörk í úrvalsdeildinni undanfarin tvö tímabil.
Frakkinn er 27 ára gamall en Palace hefur lítinn sem engan áhuga á að leyfa honum að fara í sumarglugganum.
,,Það er eins og öll lið fyrir utan Manchester City og Newcastle séu í leit að níu og að mínu mati væri Mateta frábær fengur fyrir öll lið,“ sagði Dickov.
,,Hann hefur komið öllum á óvart með sinni frammistöðu og mörkum. Við þurfum að tala um níuna sem bæði Manchester United og Arsenal þurfa.“