fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Barcelona ætlar sér að skila Rashford næsta sumar

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 4. desember 2025 09:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marcus Rashford gæti þurft að snúa óvænt aftur til Manchester United í sumar, þrátt fyrir draumaflutning til Barcelona í síðasta glugga.

Englendingurinn gekk til liðs við spænska stórliðið á láni og inniheldur samningurinn kauprétt upp á 26 milljónir punda.

Nú eru þó blikur á lofti um framtíð hans, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hann yfirgaf Old Trafford.

Samkvæmt The Athletic er líklegasta niðurstaðan sú að Barcelona láti Rashford fara þegar lánssamningurinn rennur út, sem myndi þýða að hann þyrfti að snúa aftur til United og annað hvort finna sér nýtt félag eða sannfæra Ruben Amorim um að hann eigi framtíð í herbúðunum.

Það væri þungt högg fyrir Rashford, sem hefur lýst því yfir að hann vilji dvelja áfram hjá Barcelona. Hann hefur byrjað tímabilið vel með sex mörk og níu stoðsendingar í 18 leikjum, en Hansi Flick lítur enn ekki á hann sem sjálfgefinn byrjunarliðsmann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Enn versnar ástandið hjá Tottenham

Enn versnar ástandið hjá Tottenham
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fundarhöld á Old Trafford í vikunni – Búist við að þessir séu allir til sölu í sumar

Fundarhöld á Old Trafford í vikunni – Búist við að þessir séu allir til sölu í sumar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Samfélagið í áfalli eftir skyndilegt fráfall fjölskylduföður – Vinsæll lögmaður og fyrrum vonarstjarna í fótbolta

Samfélagið í áfalli eftir skyndilegt fráfall fjölskylduföður – Vinsæll lögmaður og fyrrum vonarstjarna í fótbolta
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Valtýr og Kristinn hneykslaðir og láta í sér heyra – „Gjörsamlega fyrir neðan allar hellur“

Valtýr og Kristinn hneykslaðir og láta í sér heyra – „Gjörsamlega fyrir neðan allar hellur“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur
433Sport
Í gær

Trump og hans fólk segja að HM verði öruggasti viðburður sögunnar

Trump og hans fólk segja að HM verði öruggasti viðburður sögunnar
433Sport
Í gær

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi