fbpx
Sunnudagur 08.febrúar 2026
433Sport

Átta aðilar sem ÍBV gæti reynt að fá eftir óvænta uppsögn Þorláks í gærkvöldi

433
Fimmtudaginn 4. desember 2025 12:30

Eiður Smári Guðjhonsen og Sigurvin stýrðu báðir FH sumarið 2022. Mynd/Eythor Arnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forráðamenn knattspyrnudeildar ÍBV þurfa að finna þjálfara eftir að Þorlákur Árnason sagði mjög óvænt upp störfum í gærkvöldi. Þorlákur var ósáttur með ráðningu á framkvæmdarstjóra knattspyrnudeildar.

Alex Freyr Hilmarsson leikmaður liðsins var ráðinn í starfið á dögunum og þrátt fyrir að Þorlákur hafi ekki sett sig upp á móti ráðningu hans fór hún illa í hann.

Ljóst er að tímasetningin á uppsögn Þorláks kemur sér illa við ÍBV en kostir eins og Heimir Guðjónsson, Davíð Smári Lamude og Gunnar Heiðar Þorvaldsson eru allir búnir að ráða sig í Lengjudeildina.

Ljóst má vera að allir þeir hefðu sýnt því áhuga að taka við ÍBV.

Hins vegar er nóg af kostum í boði, nokkrir eru lausir og þá gæti ÍBV farið þá leið að kaupa upp samnings þjálfara sem er nú þegar í starfi.

Eiður Smári Guðjohnsen
Virðist hafa sýnt því áhuga að fara að þjálfa aftur, fór í viðræður við Selfoss á dögunum og var á blaði hjá HK og Val þegar þau voru að leita sér að nýjum þjálfara. Gæti kveikt mikið líf í kringum lið ÍBV.

Srdjan Tufegdžić
Var rekinn frá Val en hefur mikla og góða reynslu, þekkir það vera með lið í neðri hluta deildarinnar sem gæti reynst mikilvægt fyrir ÍBV.

Ejub Purisevic
Hefur gert frábærlega með lið á landsbyggðinni, klókur þjálfari sem gæti reynst ÍBV happafengur.

Ejub Purisevic

Haraldur Hróðmarsson
Vann við erfiðar aðstæður í Grindavík þar sem félagið var án heimavallar um langt skeið, gæti verið spennandi ráðning fyrir ÍBV.

Jón Þór Hauksson
Þrátt fyrir erfitt sumar hjá Jóni hefur hann sannað ágæti sitt sem frábær þjálfari, kostur sem Eyjamenn gætu svo sannarlega skoðað.

Bjarni Jóhannsson
Þessi reyndi þjálfari er án starfs, hefur í tvígang stýrt ÍBV. Allt er þegar þrennt eins og segir í kvæðinu góða.

Jóhann Birnir t.v

Jóhann Birnir Guðmundsson
Er í starfi hjá ÍR en hefur unnið kraftaverk þar, ætti skilið tækifæri á stærsta sviðinu í Bestu deild karla.

Sigurvin Ólafsson
Með mikla teningu til Eyja enda fæddur og uppalinn þar, hefur gert frábærlega með Þrótt síðustu sumur og hefur verið orðaður við störf í Bestu deildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Útilokar ekki að Tonali fari og segir að málið verði skoðað í sumar

Útilokar ekki að Tonali fari og segir að málið verði skoðað í sumar
433Sport
Í gær

Vill ekki segja til um hvort færslan á Instagram hafi kostað hann sekt

Vill ekki segja til um hvort færslan á Instagram hafi kostað hann sekt
433Sport
Í gær

Helgi Jean furðar sig á umræðunni – „Fyndið að sjá hvernig menn eru eins og lauf í vindi“

Helgi Jean furðar sig á umræðunni – „Fyndið að sjá hvernig menn eru eins og lauf í vindi“
433Sport
Í gær

Maguire nefnir dæmi af æfingasvæði United sem hefur hrifið hann undanfarið

Maguire nefnir dæmi af æfingasvæði United sem hefur hrifið hann undanfarið
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?
433Sport
Í gær

Guardiola segist ekki ætla að þegja þrátt fyrir gagnrýni

Guardiola segist ekki ætla að þegja þrátt fyrir gagnrýni