Manchester United er að undirbúa sitt annað tilboð í Bryan Mbeumo leikmann Brentford og verður það líklega síðasta tilboðið.
United byrjaði á að bjóða 45 milljónir punda og 10 milljónir punda í bónusa. Því var hafnað.
Nú segja ensk blöð að United bjóði 55 milljónir punda og 5 milljónir punda í bónusa.
Segir að þetta verði síðasta tilboð United í Mbeumo og félagið munni leita annað verði það ekki samþykkt.
Mbeumo hefur hafnað viðræðum við önnur félög og vill fara til United, það ætti að ráðast á næstu dögum hvort Mbeumo endi á Old Trafford eða ekki.