Framherjinn Victor Osimhen er með tvö tilboð á borðinu en hann mun færa sig um set í sumarglugganum.
Osmhsen er á mála hjá Napoli á Ítaliu en spilaði með tyrknenska félaginu Galatasaray á láni á nýliðnu tímabili.
Osimhen hefur verið orðaður við fjölmörg félög í Evrópu undanfarna mánuði en hann vill losna frá Napoli en verðimiðinn sem er um 75 milljónir evra virðist hræða þau félög.
Greint er frá því að Galatasaray vilji halda Osimhen til lengri tíma en hann skoraði 37 mörk í 41 leikjum í Tyrklandi í vetur sem svo sannarlega frábær tölfræði.
Galatasaray getur hins vegar ekki borgað 75 milljónir fyrir leikmanninn og gerir sér vonir um að fá sóknarmanninn á láni í annað tímabil sem verður að teljast ólíklegt.
Al Hilal í Sádi Arabíu er hitt liðið sem er að horfa til Osimhen og er tilbúið að borga leikmanninum allt að 500 þúsund pund á viku sem er næstum fjórfalt sem leikmaðurinn þénar á Ítalíu.
Galatasaray er sagt vera tilbúið að borga 60 milljónir evra fyrir Osimhen sem gæti verið möguleiki ef hann hefur ekki áhuga á að spila í Sádi Arabíu.