Arsenal er samkvæmt Times að skoða tvo leikmenn sem félagið hefur áhuga á að kaupa í sumar, Arsenal fer rólega af stað á markaðnum.
Times segir að Arsenal skoði að kaupa framherjann Igor Paixao frá Feyenoord.
Hann er 24 ára gamall og kemur frá Brasilíu, hann hefur staðið sig vel í hollenska boltanum og er sagður heilla forráðamenn Arsenal.
Þá er félagið sagt skoða það alvarlega að reyna að kaupa Morgan Rogers sem er 22 ára gamall og átti frábært tímabil með Aston Villa.
Rogers er enskur landsliðsmaður og var virkilega öflugur á miðsvæðinu og á kantinum með Villa í vetur.