Tindastóll 2 – 2 Valur
0-1 Nadía Atladóttir
1-1 Makala Woods
2-1 Elísa Bríet Björnsdóttir
2-2 Bryndís Eiríksdóttir
Valur byrjar Íslandsmótið í Bestu deild kvenna afskaplega illa en liðið hefur ekki unnið í síðustu fimm leikjum sínum.
Valur mætti Tindastóli á útivelli í kvöld og þurfti að sætta sig við 2-2 jafntefli.
Valur er aðeins með níu stig eftir átta umferðir og er heilum tíu stigum á eftir Þrótt Reykjavík sem er á toppnum eftir sjö leiki.
Næsti leikur Vals er gegn Fram heima og er ljóst að liðið þarf að klára það verkefni með sigri.