Ísland vann flottan sigur á Skotum í æfingaleik í kvöld en spilað var á Hampden Park ytra og lauk leiknum með 3-1 sigri.
Albert Brynjar Ingason og Lárus Orri Sigurðsson voru sérfræðingar Stöð 2 Sport í kvöld og ræddu frammistöðu íslenska liðsins eftir lokaflautið.
,,Þetta var flott frammistaða. Við byrjum sterkt en svo datt smá úr þessu en frammistaðan í seinni hálfleik var fagleg. Skotland kom inn í þennan leik með fimm varnarmenn og fjóra miðjumenn og svo Hirstaran frammi,“ sagði Albert.
,,Þeir eru ekki með marga leikmenn sem geta búið til eitthvað úr litlu.“
Lárus var ánægður með frammistöðu liðsins og segir að verkefnið hafi komið á mjög góðum tíma.
,,Ég held að þetta hafi verið mjög fínn leikur fyrir okkur og nýjan landsliðsþjálfara sem hefur fengið góðan tíma með liðinu. Þetta var æfingaleikur og við sjáum það alveg en akkúrat það sem við þurftum.“
,,Sjá Arnar þarna, hann var ekki í rifnu gallabuxunum núna! Þær mega koma þegar við erum komnir á lokamót.“
Albert sló svo á létta strengi og ætlar að reyna að draga Lárus með sér á eitthvað skrall eftir þennan frækna sigur.
,,Fyrsti sigurinn okkar á Skotum! Nóttin er ung Lárus, við erum að fara eitthvað á eftir, það er bara þannig.“
,,Konan er á kvöldvakt og þú ert hérna í höfuðborginni. Við verðum að nýta tækifærið.“