fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
433Sport

Úrslitaleikur umspilsins í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport

Helgi Sigurðsson
Þriðjudaginn 26. september 2023 12:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úrslitaleikur umspils Lengjudeildarinnar verður í beinni útsendingu og í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.

Íslenskur Toppfótbolti, Lengjan og Sýn hafa náð samkomulagi um þetta.

Afturelding og Vestri mætast í leiknum sem fram fer á laugardag á Laugardalsvelli. Hefst hann klukkan 16.

Á mánudag verður leikurinn og umspilið í heild gert upp í Lengjudeildarmörkunum hér á 433.is, en þátturinn hefur verið á dagskrá eftir hverja umferð Lengjudeildarinnar í sumar.

Tilkynning ÍTF
Laugardaginn 30. september mætast Vestri og Afturelding í hreinum úrslitaleik um hvort liðið fylgi ÍA upp í Bestu deild karla. Íslenskur Toppfótbolti, Lengjan og Sýn hafa náð samningum um að Stöð 2 Sport sýni leikinn og verður hann í opinni dagskrá í boði Lengjunnar.

„Það er í raun Lengjan sem er að gera okkur þetta kleift. Við höfum sýnt alla leiki í opinni dagskrá á YouTube í allt sumar. Okkur og Lengjunni hefði þótt skrýtið og leiðinlegt ef þessi leikur væri í lokaðri dagskrá þegar svo mikið er í húfi,“ segir Birgir Jóhannsson Framkvæmdarstjóri ÍTF

„Eftir að breytingar voru gerðar á fyrirkomulagi deildarinnar þá hef ég trú á að þessi leikur eigi bara eftir að stækka enda mikið í húfi fyrir þau lið sem í honum taka þátt. Við vildum því leggja okkar að mörkum við að reyna að gera þessum leik eins hátt undir höfði mögulegt er,“ segir Einar Njálsson markaðsstjóri Lengjunnar.

„Það er mikið ánægjuefni að geta boðið upp á einn mikilvægasta fótboltaleik sumarsins í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Við hlökkum til að gera honum skil og bjóða öllum áhugamönnum um íslenskan fótbolta upp á leikinn með því að sýna hann í opinni dagskrá í góðu samstarfi við Lengjuna,“ segir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, forstöðumaður íþróttadeildar Sýnar.

Það verður spennandi að sjá hvaða lið verður það fyrsta til að verða umspilsmeistarar í Lengjudeildinni. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst klukkan 16:00 á laugardaginn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Mjög óvænt nafn orðað við stjórastarfið hjá Chelsea

Mjög óvænt nafn orðað við stjórastarfið hjá Chelsea
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Segir stjörnu United að koma sér burt í sumar – ,,Væri gott skref fyrir hann“

Segir stjörnu United að koma sér burt í sumar – ,,Væri gott skref fyrir hann“
433Sport
Í gær

Gagnrýnir knattspyrnusambandið eftir starfsviðtal – ,,Var ekki komið vel fram við mig“

Gagnrýnir knattspyrnusambandið eftir starfsviðtal – ,,Var ekki komið vel fram við mig“
433Sport
Í gær

Varane gæti tekið gríðarlega óvænt skref aðeins 31 árs gamall

Varane gæti tekið gríðarlega óvænt skref aðeins 31 árs gamall