Það er bara tímaspursmál hvenær Mohamed Salah ákveður að yfirgefa Liverpool og taka við hærri launum annars staðar.
Þetta segir Jermaine Pennant, fyrrum leikmaður liðsins, en Salah hefur verið sterklega orðaður við Al Ittihad í Sádi Arabíu undanfarna daga.
Pennant býst ekki við að Salah verði seldur á þessu tímabili en glugginn í Sádi Arabíu lokar 20. september á meðan glugginn í Englandi er lokaður.
Pennant býst sterklega við því að Salah sé á leiðinni annað á næstu árum en hann hefur lengi verið einn besti leikmaður Liverpool.
,,Ef þú spyrð mig þá snýst þetta ekki um hvort það gerist heldur hvenær. Liverpool mun ekki hleypa honum burt á þessu tímabili en eins og Harry Kane gæti hann farið ári áður en samningnum lýkur,“ sagði Pennant.
,,Það væri líklega á næsta tímabili eða ári seinna. Það væri ekkert vit í því að hleypa honum burt núna og það væri mjög slæmt fyrir Liverpool.“
,,Tottenham ákvað að selja Harry Kane og þeir eru að missa 30 mörk, það er það sama og Liverpool myndi missa. Þeir þurfa á honum að halda.“