Dagný Brynjarsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við enska knattspyrnufélagið West Ham United sem gildir til sumarsins 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu frá West Ham í dag.
Dagný spilaði 28 leiki fyrir West Ham á síðasta tímabili og endaði það sem jafn markahæsti leikmaður liðsins með sex mörk.
Hún segir það ekki hafa verið spurning í sínum huga að skrifa undir nýjan samning við West Ham þegar að henni bauðst það en Dagný hefur verið stuðningsmaður liðsins í fjölmörg ár.
,,Ég er mjög ánægð með að vera áfram hjá West Ham United. Ég hef notið tímans hérna og hlakka til að skapa fleiri minningar hér,“ sagði Dagný eftir að hafa skrifað undir nýjan samning við West Ham United.
Hún segir félagið hafa fjölskyldubrag yfir sér. ,,Allir hér styðja mig dyggilega í móðurhlutverkinu með Brynjari syni mínum. West Ham United hefur látið mér og fjölskyldu minni líða eins og heima hjá okkur síðan að komum.“
„Ég held að ég hafi virkilega bætt mig sem leikmaður síðan ég kom til London. Ég vil samt halda áfram að bæta mig og vonandi get ég hjálpað liðinu að byggja á þeim framförum sem við höfum náð á nýafstöðnu tímabili.“
Dagný segist hlakka til komandi tíma undir stjórn nýs þjálfara, Paul Konchesky. ,,Ég hlakka nú þegar til næsta tímabils. Þegar breytingar verða innan klúbbsins er alltaf svolítið leiðinlegt þegar maður þarf að kveðja, en það er líka spennandi!“
„Ég ber mikla virðingu fyrir Konch (Paul Konchesky) sem þjálfara, svo ég er spennt fyrir því að vera hluti af fyrsta West Ham liði hans,“ sagði Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður West Ham United.
Here to stay! ♥️⚒️@dagnybrynjars has extended her contract with the Club until 2024 ✍️
➡️ https://t.co/MF3jkf99RB pic.twitter.com/tYRoxrpLVB
— West Ham United Women (@westhamwomen) May 18, 2022