Draumur forráðamanna Barcelona er að fá Paul Pogba frítt frá Manchester United næsta sumar. Spænskir miðlar segja frá.
Pogba verður samningslaus næsta sumar en hann íhugar þessa dagana að framlengja við enska félagið. Barcelona hefur þó látið Mino Raiola, umboðsmann hans vita af áhuga.
Joan Laporta forseti Barcelona vill byggja upp nýt lið í kringum franska miðjumanninn eftir að Lionel Messi fór.
Samkvæmt Fichajes á Spáni eru forráðamenn Barcelona meðvitaðir um það að mörg félög munu reyna að krækja í Pogba.
Franski miðjumaðurinn er eins og fyrr segir að skoða það að framlengja við United og þá sérstaklega eftir komu Cristiano Ronaldo til félagsins.