Miðvörðurinn Aymeric Laporte vill komast frá Manchester City og halda aftur til Spánar. Þetta segir 90min.
Hinn 27 ára gamli Laporte hefur verið hjá Englandsmeisturunum frá árinu 2018. Hann er nú kominn á eftir John Stones og Ruben Dias í goggunarröðinni í vörn liðsins og vill því fara.
Laporte kom til Man City frá Athletic Bilbao. Hann vill komast aftur í La Liga.
Bæði Barcelona og Real Madrid fylgjast með stöðu mála hjá leikmanninum. Síðarnefnda félagið hefur misst bæði Sergio Ramos og Raphael Varane úr vörninni í sumar.
Laporte er spænskur landsliðsmaður. Hann skipti um ríkisfang fyrir Evrópumótið í sumar. Leikmaðurinn hafði spilað fyrir yngri landslið Frakklands.